Kick off fundur stjórna faghópa Stjórnvísi miðvikudaginn 28.ágúst nk. í Nauthól kl.08:45-10:00
Kick off fundur stjórna faghópa Stjórnvísi verður haldinn miðvikudaginn 28.ágúst nk. í Nauthól kl.08:45-10:00
Tilgangur fundarins er að starta nýju starfsári af krafti. Farið verður yfir ýmis atriði sem létta stjórnendum faghópa starfið í vetur, búinn verður til vettvangur fyrir faghópana til að sameinast um viðburði, rýnt verður í helstu áskoranir faghópastarfsins en umfram allt fá innblástur til þess að gera komandi starfsár enn öflugra en þau síðustu.
Stjórnir faghópa eru hvattar til að hittast sem fyrst, borða saman hádegisverð í boði félagsins og huga að dagskrá starfsársins. Á tímabilinu júní-ágúst er oft best að bóka fyrirlesara. Stjórn vekur athygli á að stjórnum faghópa gefst tækifæri tvisvar á starfsárinu að hittast í hádegisverði í boði félagsins, hægt er að setja í reikning á Nauthól og á Kringlukránni. Ef aðrir staðir verða fyrir valinu er afrit af reikningi sent á Stjórnvísi og reikningurinn greiddur samdægurs.
Mikilvægt er að fylla út í skjal á vefnum drög að dagskrá en búið er að senda slóð að skjalinu á alla formenn faghópa eða senda drög að dagskrá faghópanna til framkvæmdastjóra Stjórnvísi gunnhildur@stjornvisi.is fyrir 28.ágúst. Þegar allir hópar eru búnir að senda inn dagskrána verður hún sameinuð í eitt skjal og sett inn sem ítarefni á Kick off fundinn þann 28.ágúst nk.
Stefnt er að því að senda út drög að dagskrá haustsins til félaga þann 4.september.