Aðalfundur Stjórnvísi 2019 verður haldinn á Nauthól miðvikudaginn 8. maí kl.11:45-13:00
Hér má sjá Ársskýrslu Stjórnvísi 2019. Ársskýrslan hefur að geyma myndir frá starfsárinu, reikninga félagsins, yfirlit yfir viðburði faghópa o.fl.
Óskað var eftir framboðum til stjórnar Stjórnvísi starfsárið 2019-2020, frestur til framboðs rann út 1.maí 2019.
Eitt framboð hefur borist í embætti formanns fyrir starfsárið 2019-2020:
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, vörustjóri dagsferða hjá Kynnisferðum. Aðalheiður hefur setið í stjórn Stjórnvísi sl. tvö ár og veitti hún faghópi um þjónustu-og markaðsstjórnun formennsku til fjölda ára.
Aðalstjórn: Á síðasta aðalfundi voru eftirtaldir aðilar kosnir til tveggja ára í aðalstjórn Stjórnvísi:
- Berglind Björk Hreinsdóttir, mannauðsstjóri Hrafnistuheimilanna.
- Guðjón Örn Helgason, sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Reykjavíkurborg.
- Kristján Geir Gunnarsson, forstjóri Kassagerðarinnar.
Önnur framboð í aðalstjórn og varastjórn (í stafrófsröð) sem kosið verður um á aðalfundi eru:
1. Ásdís Erla Jónsdóttir, forstöðumaður Opna háskólans í HR býður sig fram í aðalstjórn til eins árs.
2. Guðný Halla Hauksdóttir, forstöðumaður þjónustuvers-og innheimtu Orkuveitu Reykjavíkur. Guðný Halla gegnir í dag formennsku faghóps um þjónustu-og gæðastjórnun og býður sig fram í aðalstjórn.
3. Ingi Björn Sigurðsson, verkefnastjóri Icelandic Startups.
4. Jón Gunnar Borgþórsson, vottaður stjórnendaráðgjafi (CMC – Certified Management Consultant) - kosinn í varastjórn 2018 og býður sig fram í aðalstjórn.
5. Sigríður Harðardóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs hjá Strætó. Kosin í varastjórn 2018 og býður sig fram í aðalstjórn.
Kosið verður í fagráð félagsins. Eftirtaldir bjóða sig fram í fagráð félagsins:
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar (2018-2020)
Einar Snorri Einarsson framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Landsnets (2019-2021)
Jóhanna þ. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes (2018-2020)
Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs (2018-2020)
Nótt Thorberg, forstöðumaður loyalty hjá Icelandair (2019-2021)
Kosnir voru á aðalfundi tveir skoðunarmenn til 2ja ára 2018-2020
Oddný Assa Jóhannesdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2018-2020)
Guðný Helga Guðmundsdóttir, sviðsstjóri endurskoðunarsviðs KPMG (2018-2020)
Dagskrá aðalfundar
Venjuleg aðalfundarstörf:
- Kjör fundarstjóra og ritara.
- Skýrsla formanns.
- Skýrsla framkvæmdastjóra.
- Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
- Breytingar á lögum félagsins.
- Kjör formanns.
- Kjör þriggja stjórnarmanna til næstu tveggja ára.
- Kjör tveggja varamanna í stjórn til næstu tveggja ára.
- Kjör fagráðs.
- Kjör skoðunarmanna reikninga.
- Önnur mál.
- Lagabreyting. Lögð verður fram breyting á 6.grein laga félagsins.
Grein 6. hljóðar svona núna:
6. gr. Í stjórn Stjórnvísi eru sjö stjórnarmenn og tveir varamenn. Á aðalfundi er formaður kosinn sérstaklega til eins árs í senn, og getur hann setið í tvö ár sem formaður, að hámarki. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn og geta að hámarki setið í tvö ár. Varamenn skulu kosnir til eins ár í senn og geta að hámarki setið í tvö ár. Meginreglan skal vera sú að á hverju ári láti þrír stjónarmenn af störfum. Ef atkvæði eru jöfn skal hlutkesti ráða úrslitum. Leitast skal við að halda kynjahlutfalli sem jöfnustu innan stjórnar. Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo skoðunarmenn til tveggja ára í senn, þó þannig að árlega gangi annar þeirra út og nýr komi inn. Á fyrsta stjórnarfundi skiptir stjórnin með sér verkum og kýs sér varaformann og ritara til eins árs í senn. Stjórnin tekur ákvarðanir varðandi stjórnun félagsins og daglegan rekstur, þ.m.t. nýjungar í starfseminni og eftirfylgni, í samstarfi við framkvæmdastjóra. Þá setur stjórnin félaginu markmið og ber ábyrgð á skuldbindingum félagsins
Tillaga að lagabreytingu.
6. gr. Í stjórn Stjórnvísi eru níu stjórnarmenn. Á aðalfundi er formaður kosinn sérstaklega til eins árs í senn, og getur hann setið í tvö ár sem formaður, að hámarki. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn og geta að hámarki setið í tvö ár. Meginreglan skal vera sú að á hverju ári láti fjórir stjórnarmenn af störfum. Ef atkvæði eru jöfn skal hlutkesti ráða úrslitum. Leitast skal við að halda kynjahlutfalli sem jöfnustu innan stjórnar. Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo skoðunarmenn til tveggja ára í senn, þó þannig að árlega gangi annar þeirra út og nýr komi inn. Á fyrsta stjórnarfundi skiptir stjórnin með sér verkum og kýs sér varaformann og ritara til eins árs í senn. Stjórnin tekur ákvarðanir varðandi stjórnun félagsins og daglegan rekstur, þ.m.t. nýjungar í starfseminni og eftirfylgni, í samstarfi við framkvæmdastjóra. Þá setur stjórnin félaginu markmið og ber ábyrgð á skuldbindingum félagsins
Ársreikningurinn verður aðgengilegur á vefsíðu félagsins strax að loknum aðalfundi. Þeir sem óska eftir útprentuðum ársreikningi er bent á að óska eftir því sérstaklega við framkvæmdastjóra félagsins gunnhildur@stjornvisi.is
skv.6. gr. félagsreglna Stjórnvísi.
Í stjórn Stjórnvísi eru sjö stjórnarmenn og tveir varamenn. Á aðalfundi er formaður kosinn sérstaklega til eins árs í senn, og getur hann setið í tvö ár sem formaður, að hámarki. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn og geta að hámarki setið í tvö ár. Varamenn skulu kosnir til eins ár í senn og geta að hámarki setið í tvö ár. Meginreglan skal vera sú að á hverju ári láti þrír stjórnarmenn af störfum. Ef atkvæði eru jöfn skal hlutkesti ráða úrslitum. Leitast skal við að halda kynjahlutfalli sem jöfnustu innan stjórnar.
Allir félagsmenn eiga kost á að bjóða sig fram til formanns og í stjórn. Framboð til formanns og í stjórn skulu skv. lögum félagsins hafa borist í síðasta lagi viku fyrir auglýstan aðalfund þ.e. 1.maí 2019. Þeir, sem áhuga hafa á að bjóða sig fram, eru vinsamlega beðnir um að tilkynna það í pósti til gunnhildur@stjornvisi eða stjornvisi@stjornvisi.is