Stjórnarfundir Stjórnvísi eru haldnir fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl.11:00-12:00. Í stjórn félagsins eru 9 aðilar og eru fundir til skiptis á Teams og á vinnustöðum stjórnarfólks. Þema starfsársins er „TENGSL“. Á fyrsta vinnufundi stjórnar sem haldinn var í maí 2023 gerði stjórn með sér samskiptasáttmála þar sem m.a. var rætt um að:
1. Mæta undirbúin á stjórnarfundi 2. Mæta tímalega 3. Taka ábyrgð á verkefnum 4. Hafa uppbyggilega gagnrýni 5. Samskipti séu opin og eðlileg 6. Vera á staðnum 7. Allt stjórnarfólk sé virkt í starfi stjórnar 8. Stjórn ákveði sameiginlega hvar og hvernig samskipti eiga sér stað; tölvupóstur sé hinn formlegi vettvangur utan funda, en að fundir og spjall eigi sér stað á Microsoft Teams.
Stjórn skipti með sér verkum og eru áhersluverkefni starfsársins 2023-2024 fjögur:
- Ásýnd og vöxtur ábyrgðaraðilar: Stefán – Baldur – Laufey – Anna Kristín
- Stuðningur við stjórnir faghópa ábyrgðaraðilar: Snorri Páll – Lilja – Ingibjörg
- Útrás/tengsl ábyrgðaraðilar: Laufey – Anna Kristín – Auður
- Stöðugar umbætur ábyrgðaraðilar – Baldur – Anna Kristín – Lilja - Haraldur
Unnið er í þessum áhersluverkefnum og fundað um þau sérstaklega milli fastra stjórnarfunda. Öll áhersluverkefni vísa til meginmarkmiða Stjórnvísi, eiga sér undirverkefni og mælikvarða. (sjá neðar í texta). Formaður og/eða framkvæmdastjóri félagsins stýrir stjórnarfundum þar sem áhersluverkefni stjórnar eru rædd ásamt öðrum verkefnum. Stjórn hefur aðgengi að sameiginlegu svæði í skýinu. Fundargerðir stjórnar eru öllum opnar hér.
Á aðalfundi Stjórnvísi sem haldinn var 10. maí 2023 á Nauthól var kosin ný stjórn.
Stjórn Stjórnvísi 2023-2024.
Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskipta og markaðsmála hjá Háskólanum í Reykjavík, formaður (2023-2024)
Anna Kristín Kristinsdóttir, Digital Platform Adoption Manager, Marel, (2023-2025)
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar (2022-2024)
Baldur Vignir Karlsson, stofnandi og framkvæmdastjóri RevolNíu. (2023-2024)
Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkenni. (2023-2024)
Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, VIRK (2023-2025)
Laufey Guðmundsdóttir, sýningarstjóri Jarðhitasýningar ON (2023-2024)
Lilja Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg, sjálfstætt starfandi markþjálfi og teymisþjálfi (2022-2024)
Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, (2023-2025)
Kosin voru í fagráð félagsins:
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Vök Baths (2022-2024)
Davíð Lúðvíksson, sérfræðingur hjá Rannís (2023-2025)
Eyþór Ívar Jónsson, Akademías (2022-2024)
Guðrún Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Strategia (2023-2025)
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár (2022-2024)
Kosnir voru á síðasta aðalfundi tveir skoðunarmenn til 2ja ára
Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2022-2024)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2022-2024
Mælikvarðar fyrir áhersluverkefni stjórnar 2023-2024
oo= rauntíma mælaborð á síðu Stjórnvísi www.stjornvisi.is
ooo= mælt árlega í viðhorfskönnun til félagsmanna
- Ásýnd og vöxtur ábyrgðaraðilar: Stefán – Baldur – Laufey – Anna Kristín
Fjölgun fyrirtækja oo
Fjölgun fyrirtækja með 200 eða fleiri starfsmenn oo
Fjölgun fyrirtækja með 100-199 starfsmenn oo
Fjölgun á heildarfjölda notenda (innri markaðssetning fyrirtækja) oo
Fjölgun virkra félaga oo
Fjölgun nýrra virkra félaga oo
Aukning á nýskráningum í mánuðinum oo
Fjölgun nýrra háskólanema oo
Fagmennska sé ávallt höfð að leiðarljósi í öllum störfum ooo
Stjórn efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins ooo
Stjórnvísi sé áhugaverður og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu ooo
Stjórnvísi þróist í takt við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna, atvinnulífsins og samfélagsins ooo
Framsæknir og hæfir einstaklingar starfi af heilindum fyrir félagið ooo
Framkvæmdastjóri félagsins hafi leiðtogahæfileika sé styðjandi og virkur ooo
- Stuðningur við stjórnir faghópa ábyrgðaraðilar: Snorri Páll – Lilja – Ingibjörg
Fjölgun viðburða oo
Fjölgun félaga á fundum oo
Aukning á virkni faghópa oo
Aukning á félagafjölda í faghópum oo
Aukning á virkum fyrirtækjum oo
Viðburðir séu sýnilegir og auglýstir tímanlega ooo
Hækkun á NPS skori oo
Félagar upplifi sig auðugri af þekkingu um stjórnun og leiðtogafærni ooo
Félagar öðlist aukið tengslanet með þátttöku í félaginu ooo
Ábendingar eigi sér skýran farveg ooo
Stöðugt sé unnið að umbótum ooo
Í upphafi hvers fundar bendi ábyrgðaraðilar á að eftir fundinn verði send út stutt könnun. Allir hvattir til að gefa sér örstutta stund og svara. Þar er tilvalið að koma með ábendingu um hvað betur má fara.
Stjórn sé í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna ooo
Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald eru skráðir og unnið eftir þeim. ooo
Myndbönd
Stafræn fræðsla
- Útrás/tengsl ábyrgðaraðilar: Laufey – Anna Kristín – Auður
Dagskrá Stjórnvísi verði aðgengileg fyrir alla landsbyggðina
Fjölgun fyrirtækja á landsbyggðinni
Fjölgun kynninga og fyrirlesara af landsbyggðinni
Fjölgun erlendra fyrirlesara
- Stöðugar umbætur ábyrgðaraðilar:Baldur – Anna Kristín – Lilja – Haraldur
Vefur, reglur, lög, viðburðir og annað sem tengist félaginu rýnt og yfirfarið.