Aðalfundur Stjórnvísi 2017 verður haldinn á Nauthól þann 3.maí kl.15:30- 16:45.
Óskað var eftir framboðum til stjórnar Stjórnvísi starfsárið 2017-2018, frestur til framboðs rann út þann 26.apríl.
Eitt framboð hefur borist í embætti formanns fyrir starfsárið 2017-2018:
Þórunn María Óðinsdóttir, KPMG. Þórunn María hefur setið í stjórn Stjórnvísi sl. þrjú ár. Tvö ár í aðalstjórn og 1 ár í varastjórn. Þórunn María veitti faghóp um lean formennsku til fjölda ára.
Aðalstjórn: Á síðasta aðalfundi voru kosnir til tveggja ára í aðalstjórn Stjórnvísi:
- Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar (2016-2018)
- María Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Vaka, fiskeldiskerfa (2016-2018)
Önnur framboð í aðalstjórn og varastjórn (í stafrófsröð) sem kosið verður um á aðalfundi eru:
- Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, vörustjóri dagsferða hjá Kynnisferðum. Aðalheiður er í stjórn faghóps um þjónustu-og markaðsstjórnun.
- Berglind Björk Hreinsdóttir, ráðgjafi hjá Attentus. Berglind er formaður faghóps um verkefnastjórnun.
- Guðmundur S. Pétursson, gæðastjóri Tollstjóra Íslands. Guðmundur hefur starfað bæði í stjórn félagsins sem og stjórn faghópa um ISO og gæðastjórnun.
- Gyða Hlín Björnsdóttir, verkefnastjóri MBA námsins á Háskóla Íslands. Gyða hefur mikla reynslu af skipulagsstörfum og hefur setið í fjölmörgum stjórnum.
- Jón S. Þórðarson eigandi og framkvæmdastjóri viðburðafyrirtækisins PROevents. Hann starfar með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins að fjölbreyttustu viðburðum og hefur auk þess langa stjórnunarreynslu úr viðskipta- og listalífinu.
- Kristjana Kjartansdóttir, gæðastjóri OR. Kristjana er núverandi formaður faghóps um ISO en faghópurinn hefur haldið marga fjölbreytta og áhugaverða fundi í vetur.
Kosið verður í fagráð félagsins. Eftirtaldir sitja í fagráði félagsins:
Guðmunda Smáradóttir, forstöðumaður Opna háskólans í Reykjavík.(2016-2018)
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Franklin Covey á Íslandi. (2016-2018)
Hafsteinn Bragason, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Íslandsbanka (2017-2019)
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR.(2016-2018)
Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Nolta (2017-2019)
Kosnir verða tveir skoðunarmenn. Eftirtaldir voru kosnir á aðalfundi 2016 til 2ja ára:
Ásta Malmquist, deildarstjóri fyrirtækjaþjónustu Landsbankans.(2016-2018)
Agnes Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Perlu norðursins.(2016-2018)
Dagskrá aðalfundar
Venjuleg aðalfundarstörf:
- Kjör fundarstjóra og ritara.
- Skýrsla formanns.
- Skýrsla framkvæmdastjóra.
- Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
- Breytingar á lögum félagsins.
- Kjör formanns.
- Kjör þriggja stjórnarmanna til næstu tveggja ára.
- Kjör tveggja varamanna í stjórn til næstu tveggja ára.
- Kjör fagráðs.
- Kjör skoðunarmanna reikninga.
- Önnur mál.
Ársreikningurinn verður aðgengilegur á vefsíðu félagsins strax að loknum aðalfundi. Þeir sem óska eftir útprentuðum ársreikningi er bent á að óska eftir því sérstaklega við framkvæmdstjóra félagsins gunnhildur@stjornvisi.is
skv.6. gr. félagsreglna Stjórnvísi.
Í stjórn Stjórnvísi eru sjö stjórnarmenn og tveir varamenn. Á aðalfundi er formaður kosinn sérstaklega til eins árs í senn, og getur hann setið í tvö ár sem formaður, að hámarki. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn og geta að hámarki setið í tvö ár. Varamenn skulu kosnir til eins ár í senn og geta að hámarki setið í tvö ár. Meginreglan skal vera sú að á hverju ári láti þrír stjórnarmenn af störfum. Ef atkvæði eru jöfn skal hlutkesti ráða úrslitum. Leitast skal við að halda kynjahlutfalli sem jöfnustu innan stjórnar.
Allir félagsmenn eiga kost á að bjóða sig fram til formanns og í stjórn. Framboð til formanns og í stjórn skulu skv. lögum félagsins hafa borist í síðasta lagi viku fyrir auglýstan aðalfund þ.e. 26.apríl 2017. Þeir, sem áhuga hafa á að bjóða sig fram, eru vinsamlega beðnir um að tilkynna það í pósti til gunnhildur@stjornvisi eða stjornvisi@stjornvisi.is