Háskólinn í Reykjavík, stofa M209 Menntavegur, Reykjavík
Mannauðsstjórnun, Stefnumótun og árangursmat, Heilsueflandi vinnuumhverfi, Markþjálfun, Breytingastjórnun,
Á hádegisfyrirlestri Stjórnvísi verða kynntar leiðir til að hlúa að persónulegri velferð og faglegri ábyrgð starfsfólks með því að auka einbeitingu að réttum verkefnum, halda fókus, hlúa að eigin orku og hámarka afköst og árangur í lífi og starfi.
Hádegisfyrirlesturinn byggir á vinnuferlinu 5 valkostir til framúrskarandi framleiðni (The 5 Choices to Extraordinary Productivity), sem sameinar klassískar kenningar um árangursstjórnun og nýjustu rannsóknir á sviði taugavísinda til aukins árangurs og ánægju starfsmanna á þekkingaröld. Þessi áhrifaríka nálgun til aukinnar framleiðni byggir á margra ára rannsóknum og reynslu og færir þekkingarstarfsfólki og leiðtogum viðhorf og hæfni sem nauðsynleg er fyrir hámarks árangur.