Vindheimar, 7. hæð Borgartún 12-14, Reykjavík
Mannauðsstjórnun, Stefnumótun og árangursmat, Markþjálfun,
Faghópur um markþjálfun byrjar vetrarstarfið á viðburði um starfsmannasamtöl, en það er við hæfi þar sem margir standa frammi fyrir því að taka þau um þessar mundir.
Lagt verður upp með að leitast við að svara:
“Starfsmannasamtöl”
Hver á þau? Hvernig undirbúa stjórnendur sig? Hvernig er eftirfylgni háttað?
Sagt verður frá niðurstöðum nýlegrar rannsóknar á nýrri aðferð starfsmannasamtala. Umrædd starfsmannasamtöl eru með breyttu sniði að því leiti að þau eru tekin fjórum sinnum á ári, með ákveðið þema að leiðarljósi hverju sinni og innan styttri tímaramma en hefðbundin starfsmannasamtöl.
Í framhaldi af því verður fjallað um markþjálfun stjórnenda fyrir starfsmannasamtöl sem leið til að undirbúa stjórnendur að taka árangursrík starfsmannasamtöl og fylgja þeim eftir. Stjórnendur fá tækifæri til að nýta starfsmannasamtalið til fullnustu og til árangurs fyrir báða aðila.
Viðburðurinn er hugsaður fyrir stjórnendur með mannaforráð sem vilja nálgast verkefnið starfsmannasamtal af einurð og ánægju.
- Sóley Kristjánsdóttir, MS í mannauðsstjórnun og ACC markþjálfi, kynnir niðurstöður rannsóknar sinnar á umræddum starfsmannasamtölum.
- Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, Master í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og ACC markþjálfi, kynnir leiðir þess að markþjálfa stjórnendur fyrir starfsmannasamtöl.