Stjórnvísisviðburður
Stjórnarskiptafundur Stjórnvísi 2021
Stjórnvísisviðburður
Staðsetning viðburðar
Tengdir viðburðir
Loftgæði að utan sem innan
Faghópur Stjórnvísi um loftlagsmál og umhverfismál kynnir:
Á þessum viðburði kynnum við leiðir til að fylgjast með loftgæðum bæði innan- og utandyra.
Umhverfisstofnun heldur úti vefsíðunni loftgæði.is sem margir ættu að kannast við en þar varpa þeir ljósi á loftgæði í rauntíma á öllu landinu.
VISTA verkfræðistofa sérhæfir sig í allskonar mælingum og þar á meðal innanhúss loftgæðamælingar.
Einnig verður fjallað um hvernig þéttleiki húsa getur verið heilsueflandi bæði á heimilum og í vinnu umhverfi.
Fyrirlesarar: Jóhanna Kristín Andrésdóttir hjá VISTA verkfræðistofu, Einar Halldórsson frá Umhverfisstofnun og Ásgeir Valur Einarsson hjá Iðunni fræðslusetri.
Fyrsti viðburður faghóps í aðstöðustjórnun haustið 2024 er um tæknikerfi húsa, fjallað verður um m.a hússtjórnunarkerfi og viðhaldskerfi húsa.
Við fáum til okkar þrjá fyrirlesara til að fjalla um efnið.
- Ingi Eggert Ásbjarnarson hjá Veðurstofu Íslands. Ingi hefur margra ára reynslu af upplýsingakerfum bygginga, þar á meðal hússtjórnarkerfum (BMS), en í erindi sínu mun hann fjalla um BMS kerfi frá sjónarhóli rekstraraðila. Áhersla verður lögð á hvað hafa ber í huga við innkaup og innleiðingu slíkra kerfa.
- Gunnlaugur Trausti Vignisson er framkvæmdarstjóri Norcom - Nordic Commissioning ehf sem sérhæfir sig í ráðgjöf innan kerfisbundins frágangs tæknikerfa. Gunnlaugur mun fjalla um stjórnkerfi í forhönnun, það er mikilvægt að verkkaupi móti sér stefnu saman með sínum hagsmunaaðilum um hvaða virkni tæknikerfi eiga að skila af sér og hvaða upplýsingar um kerfin vill verkkaupi fylgjast með í rekstri.
- Kristleifur Guðjónsson er IPMA-C vottaður verkefnastjóri hjá EFLU og hefur víðtæka reynslu af innleiðingum hugbúnaðar og breytinga hjá tugum fyrirtækja á Íslandi og erlendis. Kristleifur fer yfir samspil hússtjórnar- og viðhaldskerfa. Yfirferð á grundvallaratriðum viðhaldskerfa og möguleikar að tengja ólík kerfi saman til þess að fá sem mest úr gögnunum sem við söfnum.
Hvernig tæklum við erfið samskipti á vinnustað? Hvernig búum við til vinnumhverfi sem ýtir undir heilbrigð og góð samskipti?
Fyrirlestur um mikilvægi góðra samskipta fyrir heilbrigða vinnustaðamenningu.
Helga Lára Haarde, Klíniskur sálfræðingur og ráðgjafi hjá Attentus
Gervigreind og stefnumótun - “Frá óvissu til árangurs - Skýr hugsun og listin að taka betri ákvarðanir”
Hindranir í vegi aukins árangurs og betri ákvarðana liggja nánast undantekningarlaust í huga okkar, hvort sem um er að ræða rangar og oft ómeðvitaðar forsendur, gallaða mælikvarða, sálrænar hömlur eða skaðlegar reglur eða ferla. Til að brjótast út úr stöðnuðu umhverfi er nauðsynlegt að finna og uppræta þessar hindranir. Eitthvert öflugasta tólið til þess er röklegt umbótaferli (Logical Thinking Process) og með tilkomu gervigreindarinnar er notkun þess nú aðgengileg langtum fleirum en áður.
Á fundinum fjallar Þorsteinn Siglaugsson um röklegt umbótaferli og les valda kafla úr bók sinni „Frá óvissu til árangurs: Skýr hugsun og listin að taka betri ákvarðanir“ sem er nýkomin út á vegum Mjaldurs útgáfu. Þorsteinn er vottaður sérfræðingur í röklegu umbótaferli og hefur um árabil starfað við ráðgjöf og þjálfun stjórnenda og sérfræðinga í aðferðafræðinni, sem á rætur að rekja til Dr. Eliyahu M. Goldratt höfundar metsölubókarinnar „The Goal“ sem haft hefur mikil áhrif á stjórnun fyrirtækja allt frá því á níunda áratug síðustu aldar.
Röklegt umbótaferli er kerfismiðuð aðferð til að taka vandaðar ákvarðanir og greina og leysa erfið og viðvarandi vandamál innan fyrirtækja og stofnana með skýra röklega hugsun að vopni.
Þessi bók er að miklu leyti byggð á fyrri bók Þorsteins, „From Symptoms to Causes – Applying the Logical Thinking Process to an Everyday Problem“ sem kom út árið 2020. Um þá bók segir Jón Torfi Jónasson prófessor emeritus við H.Í.: „Ritið vísar stjórnendum til skynsamlegra lausna í glímu við vandamál sem í fyrstu virðast ill-leysanleg. Þorsteinn lýsir vel öguðu þrepskiptu verkferli röklegrar greiningar sem dregur fram eðli vandans hverju sinni. Góð tengsl við raunhæf dæmi í megintexta og viðauka gagnast lesanda í stjórnunarstarfi afar vel. Nálgun Þorsteins er bæði frumleg og skýr og jafnframt raunhæf og spennandi.“
Í bókinni rekur Þorsteinn ýmis dæmi um beitingu röklegs umbótaferlis og síðasti hluti bókarinnar er helgaður gervigreindinni og því hvernig beita má henni til að hraða og bæta ákvarðanatöku.
Fundarstjóri er Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi.
Um staðfund er að ræða. Ekki verður streymt frá fundinum.
Stjórnarfundir Stjórnvísi eru haldnir fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl.11:00-12:00. Í stjórn félagsins eru 9 aðilar og eru fundir til skiptis á Teams og á vinnustöðum stjórnarfólks. Þema starfsársins er „SNJÖLL FRAMTÍГ. Á fyrsta vinnufundi stjórnar sem haldinn var í maí 2024 gerði stjórn með sér samskiptasáttmála þar sem m.a. var rætt um að:
1. Mæta undirbúin á stjórnarfundi 2. Mæta tímalega 3. Taka ábyrgð á verkefnum 4. Hafa uppbyggilega gagnrýni 5. Samskipti séu opin og eðlileg 6. Vera á staðnum 7. Allt stjórnarfólk sé virkt í starfi stjórnar 8. Stjórn ákveði sameiginlega hvar og hvernig samskipti eiga sér stað; tölvupóstur sé hinn formlegi vettvangur utan funda, en að fundir og spjall eigi sér stað á Microsoft Teams.
Stjórn skipti með sér verkum og eru áhersluverkefni starfsársins 2024-2025:
- Uppfæra sniðmát og leiðbeiningar fyrir stjórnir faghópa ábyrgðaraðilar: Anna Kristín, Ingibjörg, Auður.
- Innleiðing á LearnCove hjá faghópum: ábyrgðaraðilarSnorri Páll – Lilja – Matthías.
- Ásýnd, efling og vöxtur: ábyrgðaraðilar: Stefán – Haraldur – Laufey
Unnið er í þessum áhersluverkefnum og fundað um þau sérstaklega milli fastra stjórnarfunda. Öll áhersluverkefni vísa til meginmarkmiða Stjórnvísi, eiga sér undirverkefni og mælikvarða. (sjá neðar í texta). Formaður og/eða framkvæmdastjóri félagsins stýrir stjórnarfundum þar sem áhersluverkefni stjórnar eru rædd ásamt öðrum verkefnum. Stjórn hefur aðgengi að sameiginlegu svæði í skýinu. Fundargerðir stjórnar eru öllum opnar hér.
Á aðalfundi Stjórnvísi sem haldinn var 8. maí 2024 á Nauthól var kosin ný stjórn.
Stjórn Stjórnvísi 2024-2025.
Stefán Hrafn Hagalín, framkvæmdastjóri Þrettán ellefu ehf., formaður (2024-2025)
Anna Kristín Kristinsdóttir, Digital Platform Adoption Manager, Marel, (2023-2025)
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar (2024-2025)
Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkenni. (2024-2025)
Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, (2023-2025)
Laufey Guðmundsdóttir, sýningarstjóri Jarðhitasýningar ON (2024-2025)
Lilja Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi markþjálfi og teymisþjálfi (2024-2025)
Matthías Ásgeirsson, VSÓ, (2024-2026)
Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, (2023-2025)
Kosin voru í fagráð félagsins:
Davíð Lúðvíksson, sérfræðingur hjá Rannís (2023-2025)
Guðrún Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Strategia (2023-2025)
Margrét Tryggvadóttir, forstjóri NOVA (2024-2026)
Sigríður Harðardóttir, mannauðsstjóri Norðuráls (2024-2026)
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO (2024-2026
Kosnir voru tveir skoðunarmenn til 2ja ára
Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2024-2026)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2024-2026)
Eftirfarandi eru fyrstu tillögur/drög að mælikvörðum stjórnar 2024-2025
Mælikvarðar fyrir áhersluverkefni stjórnar 2024-2025
oo= rauntíma mælaborð á síðu Stjórnvísi www.stjornvisi.is
ooo= mælt árlega í viðhorfskönnun til félagsmanna
2024-2025
- Uppfæra sniðmát og leiðbeiningar fyrir stjórnir faghópa (Anna K. Ingibjörg, Auður)
- Aukning á virkni faghópa oo
- Viðburðir séu sýnilegir og auglýstir tímanlega ooo
- Ábendingar eigi sér skýran farveg ooo
- Stjórn sé í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna ooo
- Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald eru skráðir og unnið eftir þeim. ooo
- Innleiðing á LearnCove hjá faghópum (Snorri Páll, Lilja, Matthías)
- Talning á fjölda félaga sem nýta LearnCove (verði sett inn í mælaborð)
- Fjöldi funda sem er settur inn á LearnCove (verði sett inn í mælaborð)
- Áhorf á fundi inn á LearnCove (verði sett inn í mælaborð)
- Ásýnd, efling og vöxtur (Stefán, Haraldur, Laufey)
i. Fjölgun fyrirtækja oo
- Fjölgun fyrirtækja með 200 eða fleiri starfsmenn oo
- Fjölgun fyrirtækja með 100-199 starfsmenn oo
ii. Fjölgun á heildarfjölda notenda (innri markaðssetning fyrirtækja) oo
iii. Fjölgun virkra félaga oo
iv. Fjölgun nýrra virkra félaga oo
v. Fjölgun viðburða oo
vi. Fjölgun félaga á fundum oo
vii. Aukning á nýskráningum í mánuðinum oo
viii. Aukning á félagafjölda í faghópum oo
ix. Aukning á virkum fyrirtækjum oo
x. Fjölgun nýrra háskólanema oo
xi. Fagmennska sé ávallt höfð að leiðarljósi í öllum störfum ooo
xii. Stjórnin efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins ooo
xiii. Stjórnvísi sé áhugaverður og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu ooo
xiv. Stjórnvísi þróist í takt við við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna og atvinnulífsins ooo
xv. Framsæknir og hæfir einstaklingar starfi af heilindum fyrir félagið ooo
xvi. Framkvæmdastjóri félagsins hafi leiðtogahæfileika, sé styðjandi og virkur ooo
xvii. Dagskrá Stjórnvísi verði aðgengileg fyrir alla landsbyggðina
xviii. Fjölgun fyrirtækja á landsbyggðinni
xix. Fjölgun kynninga og fyrirlesara af landsbyggðinni
xx. Fjölgun erlendra fyrirlesara
xxi. Hækkun á NPS skori oo
xxii. Félagar/stjórnendur faghópa upplifi sig auðugri af þekkingu um stjórnun og leiðtogafærni ooo
Félagar öðlist aukið tengslanet með þátttöku í félaginu oo
Lísbet Einarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Starfsafli býður félagsfólki Stjórnvísis heim, í Hús Atvinnulífsins, til að njóta léttra veitinga og hlýða á erindi þar sem Lísbet mun fjalla vítt og breitt um fræðslu fyrirtækja, mikilvægi fræðslustefnu og áætlunar, ásamt því að svara spurningum úr sal.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Fundarstjóri er Guðrún Finns., stjórnarmeðlimur í faghóp mannauðsstjórnunar.
Viðburðurinn mun fjalla um möguleg áhrif gervigreindar á gereyðingarvopn, bæði þá áhættu og þau tækifæri sem tæknin hefur í för með sér. Farið verður yfir hugsanlegar hættur þegar kemur að sjálfstæðum vopnakerfum, aðstoð við ákvarðanatöku og misnotkun tækninnar. Sérstök áhersla verður lögð á kjarnorkuvopn, efnavopn og sjálfvirk vopn. Í umræðu með þátttakendum skoðum við siðferðileg sjónarmið, þörfina fyrir regluverk og og mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu.
Notið eftirfarandi vefslóð:
Fyrirlesarinn Kolfinna Tómasdóttir er sérfræðingur í alþjóðateymi rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís. Þá er hún meðstofnandi og einn stjórnenda AiXist – Consortium for AI & Existential Risks, stofnmeðlimur Global Youth Security Council (GYSC) og One Young World Ambassador. Kolfinna er með meistaragráðu í alþjóðalögum og úrlausn deilumála frá Friðarháskóla Sameinuðu þjóðanna í Kosta Ríka ásamt því að vera með diplómu í alþjóðlegri leiðtogahæfni. Einnig er hún með Mag. Jur. og BA gráðu í lögfræði ásamt diplómu í Mið-Austurlandafræði frá Háskóla Íslands.
Í þessu erindi mun Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, fjalla um hvernig stefnumörkun með samvinnu grasrótar og heilbrigðisstarfsmanna hefur leitt þær breytingar sem orðið hafa á starfseminni á undanförnum árum.
SÁÁ eru almannaheillasamtök sem reka heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með fíknsjúkdóm og aðstandendur þeirra. Samtökin eru grasrótarsamtök og byggðu upp lífsnauðsynlega þjónustu á tímum þar sem lítil sem engin þekking , áhugi eða þjónustuframboð var fyrir fólk með fíkn. Á undanförnum árum hefur SÁÁ farið í gegnum mikið umrót og kynslóðaskipti á sama tíma og tekist hefur verið á við miklar breytingar í samfélaginu varðandi neyslu áfengis og vímuefna og ákalli um meiri, aukna og fjölbreyttari þjónustu.
Fjarfundur, tengill væntanlegur.
Fjolbreytileiki og inngilding hjá Hrafnistu-reynslusaga
Í þessu erindi fjalla mannauðsráðgjafar Hrafnistu um hvernig er unnið með fjölbreytileika og inngildinu hjá Hrafnistu, hvar þau eru stödd og hver markmiðin eru.
Hrafnista er önnur stærsta heilbrigðisstofnun landsins, rekur 8 heimili í 5 sveitarfélögum, og býr því að baki sterkur hópur starfsfólks eða um 1700 talsins. Starfsfólki fer fjölgandi þar sem Hrafnista Boðaþingi og Hrafnista Nesvöllum stækka
umtalsvert á næsta ári.
Starfsfólk Hrafnistu er lykillinn af farsælum rekstri Hrafnistu og leggur Hrafnista áherslu á að fá til liðs við sig öflugt, traust og metnaðarfullt starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn.
Hlutfall starfsfólks með erlendan bakgrunn er misstór á milli Hrafnistuheimila og er frá 6-20% og hefur um 40 þjóðerni. Tekin hefur verið ákvörðun um að leggja höfuðáherslur á þann hóp til að byrja með t.a.m. aukinni fræðslu til stjórnenda og
inngildandi ráðningar- og móttökuferli.
Fyrirlesarar: Freyja Rúnarsdóttir mannauðsráðgjafi, sér einnig um ráðningar á
Hrafnistuheimilunum og Auður Böðvarsdóttir mannauðsráðgjafi, sér einnig um
fræðslu á Hrafnistuheimilunum.
Hvernig virkjum við „Viskuvélar“ og aðferðir markþjálfunar á stafrænum Vettvangi vaxtar.
Hvernig virkjum við „Viskuvélar“ og aðferðir markþjálfunar á stafrænum Vettvangi vaxtar.
AI coach FranklinCovey og virkniáskoranir til framfara.
Á fundinum mun Guðrún kynna til leiks snjallan markþjálfa FranklinCovey á Vettvangi vaxtar – svokallaðan „AI coach“ - og leiða hópinn um nokkur dæmi um öflug samtöl. Um er að ræða snjalla viðbót við þekkingarveitu FranklinCovey á Impact Platform sem styður notendur í fjölda áskoranna og viðfangsefna í dagsins önn. Æfðu erfið samtöl, fáðu endurgjöf og virkjaðu góðan stuðning og nýja sýn á verkefni dagsins með aðstoð gervigreindar.
Guðrún Högnadóttir, Managing partner FranklinCovey
TEAMS linkur hér
Eldri viðburðir
Vettvangsferð í HVIN - Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Fjallað um traust í samhengi góðra/ábyrgra stjórnarhátta.
Erindi frá Dr. Eyþóri Ívari Jónssyni um tilurð, mikilvægi og takmarkanir trausts í samhengi við góða/ábyrga stjórnarhætti.
Gert er ráð fyrir að tækifæri gefist til að skiptast aðeins á skoðunum að erindi loknu.
Hvernig gengur með Heilsueflandi vinnustað? Staðan tekin.
Heilsueflandi vinnustaður er gagnvirkt verkfæri sem allir vinnustaðir geta notað endurgjaldslaust til að átta sig á og máta sig við þá þætti á vinnustað sem hafa áhrif á heilsu og vellíðan starfsfólks. Niðurstöðurnar nýtast síðan til að móta öflugan heilsueflandi vinnustað. Heilsueflandi vinnustaður er samstarfs verkefni Embættis landlæknis, Vinnueftirlitsins og VIRK.
Verkfærið hefur nú verið í boði í nokkurn tíma og við ætlum að heyra hvernig gengur.
Heilsueflandi vinnustaður – verkfærið og vinnan.
Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur sem starfar sem verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis.
Heilsuefling hjá Eflu - hvernig gengur og hvað er á döfinni?
Inga Berg Gísladóttir, mannauðssérfræðingur hjá Eflu.
Fundarstjóri verður Valgeir Ólason, stjórn faghóps um Heilsueflandi vinnuumhverfi.
Framtíðir – Hringrásarhagkerfið – Árangur eða árangursleysi
Fyrirlesari Björgvin Sævarsson, Yorth Group í Bandaríkjunum. www.yorthgroup.com
Hvernig vitum við fyrir víst hvort aðgerðir og fjárfestingar skili okkur í átt að markmiðunum? Hefur stjórnsýslan (yfirvöld og fyrirtæki/iðnaður) yfirlit yfir aðgerðir og í réttu samhengi? Þetta er ekki raunin skv. okkar reynslu. Aðgerðir skila sér í einangruðum árangri, t.d. carbon footprint og missa þ.a.l. af möguleikanum til að ná umfangsmeiri árangri sem nær inn á önnur svið. Þrátt fyrir vel meint og stór verkefni og fjárfestingar erum við að sjá að efnahagskerfi verða þyngri og erfiðari með tímanum.
Ástæða þess að við náum ekki settum markmiðum byrjar yfirleitt með því að við skilgreinum árangur ekki rétt. Næst kemur í ljós að aðgerðir og lausnir eru ekki að passa við vandann sem við erum að reyna að leysa. Á endanum er útkoman ekki að skila sér í átt að markmiðunum.
Viðburðurinn verður á þessari vefslóð:
Auk þess verður fjallað um eftirfarandi:
• Höfum við skilgreint rétt til að ná markmiðunum og hlutverk annarra í okkar markmiðum? T.d. carbon neutrality sem er bara lítill partur af orkufótsporinu og ef við tökum ekki á öllu fótsporinu munum við ekki ná carbon neutrality.
• Vitum við af hverju við erum ekki að ná markmiðunum? (þetta er stærri spurning en hún lítur út fyrir að vera)
• Kunnum við að segja frá því af hverju við erum ekki net-zero og á sama tíma segja frá hvernig við munum ná markmiðunum?
• Hvaða áhrif hafa samskipti og skilaboð á samkeppnishæfni fyrirtækja og lífsgæði?
Fagráðsfundur Stjórnvísi haldinn miðvikudaginn 9. október nk. á Vox kl.11:40-12:50 (lokaður fundur)
Fundur stjórnar með fagráði Stjórnvísi verður haldinn miðvikudaginn 9. október nk. á Vox kl.11:40-12:50.
Fyrirkomulag fundarins verður þannig að formaður Stjórnvísi Stefán Hrafn Hagalín heldur örstutta kynningu á starfseminni í vetur og síðan væri aldeilis gott að fá frá ykkur hverju og einu uppbyggilega gagnrýni og hugmyndir í nýjum og breyttum veruleika t.d. varðandi Íslensku ánægjuvogina, Stjórnunarverðlaunin og afhendingu viðurkenninga til fyrirmyndarfyrirtækja í góðum stjórnarháttum.
Meginmarkmiðið með fundinum er að fá frá ykkur fagleg ráð varðandi hvað má gera betur og hvað er vel gert.
Þess má geta að virkir faghópar Stjórnvísi eru í dag 20 og starfa í stjórnum þessara faghópa yfir 150 manns.
Meðfylgjandi er fundargerð frá starfsdegi stjórnar sem haldinn var 29.maí sl.
Á þeim fundi voru valin áhersluverkefni stjórnar fyrir veturinn 2024-2025.
Þar má sjá dagskrá komandi starfsárs og stóru viðburðina: Íslensku ánægjuvogina, haustráðstefnu, Stjónunarverðlaunin og Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.
Læt fylgja áhugaverða linka á heimasíðu félagsins www.stjornvisi.is
https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/hlutverk-stjornvisi
https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi
https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/stjornir-faghopa/verklagsreglur-faghopa
https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/stjornir-faghopa/sidareglur
Fagráð Stjórnvísi 2024-2025
Davíð Lúðvíksson, sérfræðingur hjá Rannís (2023-2025)
Guðrún Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Strategia (2023-2025)
Margrét Tryggvadóttir, forstjóri NOVA (2024-2026)
Sigríður Harðardóttir, mannauðsstjóri Norðuráls (2024-2026)
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO (2024-2026
Stefán Hrafn Hagalín, formaður stjórnar Stjórnvísi verður fulltrúi stjórnar á þessum fundi.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi
Fundargerð frá starfsdegi stjórnar
Staðsetning: Kringlukráin
29.maí 2024 kl. 11:00 – 13:00
Þátttakendur 29. maí 2024:
Anna Kristín Kristinsdóttir, Gunnhildur Arnardóttir, Ingibjörg Loftsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Snorri Páll Sigurðsson, Stefán Hrafn Hagalín, Laufey Guðmundsdóttir, Auður Daníelsdóttir, Haraldur Bjarnason, Matthías Ásgeirsson.
Snorri Pall Sigurdsson <Snorri.Sigurdsson@alvotech.com>; Stefan Hrafn Hagalin <hagalin@gmail.com>; Matthías Ásgeirsson <matthias@vso.is>; Haraldur Bjarnason <halli@audkenni.is>; liljagu <liljagu@gmail.com>; Inga Loftsdóttir <iloftsdottir@gmail.com>; laufeygudm <laufeygudm@gmail.com>; Anna Kristín Kristinsdóttir <anna.kristinsdottir@marel.com>; Auður Daníelsdóttir audur@orkan.is
Dagskrárliðir
- Samskiptasáttmáli. Fundurinn hófst með því að Stefán Hrafn Hagalín formaður stjórnar Stjórnvísi bauð alla velkomna og fór yfir dagskrá og markmið fundarins. Formaður Stjórnvísi kynnti hugmynd að samskiptasáttmála stjórnar 2024-2025 þar sem m.a. var rætt um að: 1. Mæta undirbúin á stjórnarfundi 2. Mæta tímalega 3. Taka ábyrgð á verkefnum 4. Hafa uppbyggilega gagnrýni 5. Samskipti opin og eðlileg 6. Vera á staðnum. 7. Allt stjórnarfólk sé virkt í starfi stjórnar. 8. Stjórn ákveði sameiginlega hvar og hvernig samskipti eiga sér stað.
- Yfirferð á framtíðarsýn, stefnu, gildum, lögum og siðareglum. Stefán Hrafn fór yfir framtíðarsýn, stefnu, gildi, meginmarkmið lög og siðareglur. Umræður urðu um að vinnumarkaðurinn er í stöðugri þróun og mikilvægt að félagið þróist í takt við hann. Í framhaldi var tekin ákvörðun um að:
- · Skerpa á hlutverki og stefnu Stjórnvísi eins og hollt er að gera með reglubundnum hætti og tryggja að talandinn inngildi alla þá hópa samfélagsins sem félagið á erindi við; sú vinna fari fram í ágúst á fyrsta fundi stjórnar í Hellisheiðarvirkjun og verði leidd af Auði Daníelsdóttur.
· Yfirfara lög félagsins og siðareglur í takti við ofangreint.
· Uppfæra hönnun, letur, liti og kynningargardínur (banner-ups) Stjórnvísi; tilboða verður leitað hjá hönnuðum.
· Fara í kjölfarið í endurnýjað markaðsátak þar sem faghóparnir verða í aðalhlutverki og sérstök áhersla á að ná til háskólasamfélagsins og ungs fólks í atvinnulífinu.
Þá urðu umræður um mikilvægi þess að stjórn sé áfram með góðan stuðning við stjórnendur faghópanna.
Í framhaldi kynntu stjórnarmenn sig með því að segja örstutt frá sér.
Einnig urðu umræður um hvar stjórn vill eiga samskipti og var ákveðið að halda áfram að eiga samræður í tölvupóstum og á Teams.
- Áætlun og lykilmælikvarðar. Áætlun félagsins stenst og eru tekjur á áætlun. Áætlun félagsins er uppfærð reglulega allt árið og er aðgengileg stjórnarfólki í Sharepoint. Stjórn var hvött af framkvæmdastjóra félagsins til að fara inn á Sharepoint reglulega.
- Farið var yfir aðganga stjórnar að Sharepoint, Teams, Facebook og skráning stjórnar í faghópinn „stjórn Stjórnvísi“. Framkvæmdastjóri var hvattur til að hafa samband við Stefnu hugbúnaðarhús sem allra fyrst varðandi rafræna innskráningu á vef félagsins á facebbok.
- Þema ársins 2024-2025 ákveðið og útfærsla. Nýkjörin stjórn kom með fjölda hugmynda að þema ársins. Niðurstaðan var sú að stjórn sammæltist um að þema ársins yrði „Snjöll framtíð“. Farið verður betur yfir útfærsluna í haust.
- Varaformaður Stjórnvísi var kosin Anna Kristín Kristinsdóttir og ritari Gunnhildur Arnardóttir.
- Fundartími og staðsetningu stjórnarfunda. Niðurstaðan var sú að stjórnarfundir verða haldnir fyrsta þriðjudag í mánuði kl.11:00-12:00. Stjórn mun skiptast á að bjóða heim, ef eitthvað kemur upp á er alltaf hægt að halda fundi í Innovation House og á Teams. Ef áhugi er að bjóða í mat eða skoðunarferð um vinnustað gestgjafa er það gert um leið og fundi lýkur kl.12:00.
- Ágúst Hellisheiði þriðjudaginn 20.ágúst 2024.
- September Grand Hótel (í beinu framhaldi af haustráðstefnu)
- Október VSÓ
- Nóvember Teams
- Desember OTÓ
- Janúar Teams
- Febrúar Alvotech
- Mars Teams
- Apríl Orkan
- Maí Teams
- Kynning á reglubundnum verkefnum stjórnar
Tímasetning var ákveðin á helstu viðburðum Stjórnvísi og þeir settir inn á dagatal félagsins.
Ágúst 2024: Fyrirmyndarfyrirtæki ársins viðurkenningarathöfn (Nauthóll 23.ágúst hádegisverður – lokaður viðburður)
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, Jón Gunnar Borgþórsson, Viðskiptaráð Íslands, Kauphöllin og SA.
Ágúst fimmtudagurinn 29.ágúst 2024: Kick off fundur
Hvar: Akademías – Erindi: hvernig eflir maður stjórnir og stjórnarsamstarf.
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur, stjórn Stjórnvísi
September 2024
Þann 2. september verður haustdagskrá Stjórnvísi send út á alla aðila
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
September 2024
Haustráðstefna Stjórnvísi – 25. september 2024 staðfest kl.08:00-11:00. Grand Hótel Háteig
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, stjórn
Þema: SNJÖLL FRAMTÍÐ (Stefán kemur með drög). (Tala við formenn framtíðarhóps og gervigreindar til samráðs og að fá hugmyndir)
Hagnýting gervigreindar hjá Orkunni – Sverrir ( Laufey ræðir við hann)
Bergur Ebbi – fundarstjóri
Forstjóri Treble - - (aðstöðustjórnun – heilsueflandi vinnuumhverfi) ..
Birkir Björnsson – UT stjóri Arctic adventures (gervigreind/þjónustuborð)
Október/nóvember 2024
Fundur með fagráði
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur og Stefán
Janúar 2025
9. janúar. Nýársfagnaður –
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Hvar: Marel
Efni verður valið á Kick off fundinum í ágúst. Stjórnir faghópanna ákveða hvaða efni er brýnast. Anna Kristín kanni hvort Marel vilji bjóða heim.
Janúar 2025
Íslenska ánægjuvogin 2024 afhent 16 janúar 2024 kl.08:30-09:30
Ábyrgðaraðili:Gunnhildur og Prósent.
Febrúar mánudagur 10.februar 2025
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025
Ábyrgðaraðili:Gunnhildur, Stefán Hrafn.
Tímabil:Haldin 10.febrúar 2025
Þema: TENGSL
Apríl/maí 2025
Aðalfundir faghópa
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Maí 2025
Aðalfundur Stjórnvísi
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Maí 2025
Stjórnarskiptafundur:
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Ágúst 2025
Fyrirmyndarfyrirtæki 2024.
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, Jón Gunnar
- Áhersluverkefni starfsársins verða þrjú: (sjá mælikvarða neðar í fundargerð).
Stefán kynnti áhersluverkefni síðustu ára. Í framhaldi ákvað nýkjörin stjórn Stjórnvísi áhersluverkefni komandi starfsárs. Á fyrsta fundi í haust verða fundnir mælikvarðar á þessi þrjú áhersluverkeni.
2024-2025 (þrjú áhersluverkefni – í hverju felast þau)
- Uppfæra sniðmát og leiðbeiningar fyrir stjórnir faghópa (Anna K. Ingibjörg, Auður)
- Innleiðing á LearnCove hjá faghópum (Snorri Páll, Lilja, Matthías)
- Ásýnd, efling og vöxtur (Stefán, Haraldur, Laufey)
2024-2025 – mælikvarðar (tillaga)
oo= rauntíma mælaborð á síðu Stjórnvísi www.stjornvisi.is
ooo= mælt árlega í viðhorfskönnun til félagsmanna
2024-2025
- Uppfæra sniðmát og leiðbeiningar fyrir stjórnir faghópa (Anna K. Ingibjörg, Auður)
- Aukning á virkni faghópa oo
- Viðburðir séu sýnilegir og auglýstir tímanlega ooo
- Ábendingar eigi sér skýran farveg ooo
- Stjórn sé í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna ooo
- Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald eru skráðir og unnið eftir þeim. ooo
- Innleiðing á LearnCove hjá faghópum (Snorri Páll, Lilja, Matthías)
- Talning á fjölda félaga sem nýta LearnCove (verði sett inn í mælaborð)
- Fjöldi funda sem er settur inn á LearnCove (verði sett inn í mælaborð)
- Áhorf á fundi inn á LearnCove (verði sett inn í mælaborð)
- Ásýnd, efling og vöxtur (Stefán, Haraldur, Laufey)
i. Fjölgun fyrirtækja oo
- Fjölgun fyrirtækja með 200 eða fleiri starfsmenn oo
- Fjölgun fyrirtækja með 100-199 starfsmenn oo
ii. Fjölgun á heildarfjölda notenda (innri markaðssetning fyrirtækja) oo
iii. Fjölgun virkra félaga oo
iv. Fjölgun nýrra virkra félaga oo
v. Fjölgun viðburða oo
vi. Fjölgun félaga á fundum oo
vii. Aukning á nýskráningum í mánuðinum oo
viii. Aukning á félagafjölda í faghópum oo
ix. Aukning á virkum fyrirtækjum oo
x. Fjölgun nýrra háskólanema oo
xi. Fagmennska sé ávallt höfð að leiðarljósi í öllum störfum ooo
xii. Stjórnin efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins ooo
xiii. Stjórnvísi sé áhugaverður og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu ooo
xiv. Stjórnvísi þróist í takt við við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna og atvinnulífsins ooo
xv. Framsæknir og hæfir einstaklingar starfi af heilindum fyrir félagið ooo
xvi. Framkvæmdastjóri félagsins hafi leiðtogahæfileika, sé styðjandi og virkur ooo
xvii. Dagskrá Stjórnvísi verði aðgengileg fyrir alla landsbyggðina
xviii. Fjölgun fyrirtækja á landsbyggðinni
xix. Fjölgun kynninga og fyrirlesara af landsbyggðinni
xx. Fjölgun erlendra fyrirlesara
xxi. Hækkun á NPS skori oo
xxii. Félagar/stjórnendur faghópa upplifi sig auðugri af þekkingu um stjórnun og leiðtogafærni ooo
xxiii. Félagar öðlist aukið tengslanet með þátttöku í félaginu oo
Fyrri áhersluverkefni:
2016-2017
- Fagna 30 ára afmæli.
- Innviðir félagsins og heimasíða og stjórnun
- Markaðsmál og sýnileiki
- Tengslamyndun, viðburðir og samstarf
2017-2018
- Varðveita sögu félagsins
- Markaðsmál og vefur
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Mælingar og starfsemi félagsins
2018-2019
- Markaðsmál
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Heimasíða
- Mælaborð
2019-2020
- Stefnumótun 2020-2025
- Sölu of markaðsmál
- Stuðningur við stjórnir faghópa
2020-2021
- Markaðsmál og sýnileiki
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Samstarf við aðra um jafningjafræðslu
2021-2022
- Markaðsmál og sýnileiki
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Útrás
2022-2023
- Ásýnd og vöxtur
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Útrás
2023-2024
- Ásýnd og vöxtur: Stefán – Baldur – Laufey – Anna Kristín
- Stuðningur við stjórnir faghópa: Snorri Páll – Lilja - Ingibjörg
- Útrás/tengsl: Laufey – Anna Kristín - Auður
- Stöðugar umbætur: Baldur – Anna Kristín – Lilja - Haraldur
2024-2025
- Uppfæra sniðmát og leiðbeiningar fyrir stjórnir faghópa (Anna K. Ingibjörg, Auður)
- Innleiðing á LearnCove hjá faghópum (Snorri Páll, Lilja, Matthías)
- Ásýnd, efling og vöxtur (Stefán, Haraldur, Laufey)