Digranesvegur 1, Kópavogur, 1. hæð - Fundarherberbergið Vatnsendi
Gæðastjórnun og ISO staðlar,
Aðalfundur faghóps um Gæðastjórnun og ISO staðla verður haldinn mánudaginn 6. maí kl. 12.30-13:30 að Digranesvegi 1 (Kópavogsbær)
Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Gæðastjórnun og ISO staðlar:
- Framsaga formanns – um starf ársins
- Umræður um starf ársins, hvað var vel heppnað, hvað má gera betur?
- Kosning til stjórnar
- Ákvarða fyrsta fund nýrrar stjórnar
- Önnur mál
Stjórn faghóps hittist að lágmarki tvisvar á ári, við lok starfsárs eftir aðalfund til að fara yfir líðandi ár, og svo við upphaf starfsárs til að skipuleggja viðburði ársins. Sjá nánar um hópinn hér: https://www.stjornvisi.is/is/faghopar/gaedastjornun
Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar, vinsamlegast sendið tölvupóst til formanns félagsins á sigurdurao@kopvogur.is
Fundarstjóri er Sigurður Arnar Ólafsson