Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Hverfisgata 113, 105 Reykjavík
Mannauðsstjórnun,
Sigríður Björk Guðjónsdóttir Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins hefur tileinkað sér þjónandi forystu og ætlar að fjalla um framkvæmd hennar í sínu starfi, áskoranir og ávinning.
Í fyrra fengu félagar Stjórnvísi kynningu á Þjónandi forystu og gildum hennar. Nú fylgjum við þeirri kynningu eftir og fáum innsýn í hvernig þjónandi forysta er í framkvæmd og hvernig er að vinna samkvæmt gildum þjónandi forystu.
Ekki missa af þessu erindi - einkar áhugavert fyrir alla þá sem hafa áhuga á að kynna sér og tileinka sér þjónandi forystu í starfi.