VIRK Guðrúnartún 1, 4 hæð, Reykjavík
Markþjálfun,
Fyrirlestur á vegum Stjórnvísi 20. febrúar kl. 8:30 - 9:45 hjá VIRK í Guðrúnartúni 1, 4. hæð.
Starfsfólk VIRK segir frá því hvernig markþjálfun er nýtt í starfsendurhæfingu einstaklinga í þjónustu VIRK. Auk þess mun Laufey Haraldsdóttir, ACC vottaður markþjálfi, segja frá reynslu sinni sem þjónustuaðili fyrir VIRK.
Viðburðurinn er fyrir alla stjórnendur, mannauðsstjóra, markþjálfa og þá sem hafa áhuga á að heyra reynslusögur af árangri í starfsendurhæfingu, og hvernig markþjálfun nýtist við að ná árangri.
Boðið verður upp á morgunhressingu