Aðalfundur faghóps um leiðtogafærni verður haldinn 2. maí klukkan 12:30 til 13:00. Allir félagsmenn Stjórnvísi eru velkomnir og áhugasamir geta boðið sig fram til stjórnar. Staða formanns er og einnig er hægt að bæta félögum í stjórn.
Dagskrá fundar:
- Uppgjör á starfsárinu
- Lærdómur af fyrsta starfsári endurnýjaðs faghóps
- Kosning til stjórnar
- Önnur mál
Fundurinn fer fram á Teams á þessum hlekk
Störf stjórnar felast í skipulagningu 4-5 fræðsluviðburða á hverri önn. Starfið einkennist af teymisstarfi þannig að vinnuálagi er dreift á milli allra meðlima, skýrar leiðbeiningar eru um hvernig störfum er háttar og því er auðvelt fyrir nýja aðila að fylgja eftir góðu starfi og vonandi gera enn betur. Staða formanns faghópsins er jafnframt laus en sú staða felur í sér mikilvæga yfirsýn, samhæfingu og skipulagningu heildarinnar. Þátttaka í stjórn frábært tækifæri til að styrkja tengslanetið og byggja upp þekkingu í faginu.
Allir sem hafa áhuga á leiðtogafærni og vilja taka þátt að auka þekkingu á leiðtogafærni á Íslandi geta haft samband við Þórhildi Þorkelsdóttur, fráfarandi formann faghópsins, thorhildur.thorkelsdottir@gmail.com, s: 6176405