Fundurinn var tekinn upp og er aðgengilegur á facebooksíðu Stjórnvísi.
Renata fór í fyrirlestri sínum fara yfir þá stafrænu umbreytingu sem Krónan hefur gengið í gegnum á síðustu þremur árum. Á þeim tíma hefur orðið bylting í þjónustu matvöruverslana á Íslandi með tilkomu sjálfsafgreiðslukassa og netverslana. Stefnan er að breyta markaðnum og þjónustunni til framtíðar en til þess þarf að hafa hugrekki til að taka stórar og framúrstefnulegar ákvarðanir.
Eitt það stafræna verkefni sem Krónan er hvað mest stoltust af er "minnkum matarsóun". Þar er salan seld á mismunandi verði til við viðskiptavini t.d. bananar. Um leið og starfsmaður sér að vara er að renna út þá hefur starfsmaður leyfi til að lækka hana. Vörumerkjastjórar merkja allar þær vörur sem mega fara á "síðasta séns". Önnur verkefni eru sjálfsafgreiðslukassar.
Stafræn stefna getur breytt leiknum - Krónan
Um viðburðinn
Click here to join the meeting
Renata mun í fyrirlestri sínum fara yfir þá stafrænu umbreytingu sem Krónan hefur gengið í gegnum á síðustu þremur árum. Á þeim tíma hefur orðið bylting í þjónustu matvöruverslana á Íslandi með tilkomu sjálfsafgreiðslukassa og netverslana.
Stefnan er að breyta markaðnum og þjónustunni til framtíðar en til þess þarf að hafa hugrekki til að taka stórar og framúrstefnulegar ákvarðanir. Boðið verður upp á spurningar í lok fyrirlestursins.
Um Renötu S. Blöndal:
Renata er yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Krónunni þar sem hún stýrir stafrænni vegferð ásamt því að móta stefnu og innleiða matvöruverslun framtíðarinnar. Áhersla er lögð á að bæta þjónustu og einfalda líf viðskiptavina og er þar nýjasta viðbótin Snjallverslun Krónunnar. Viðskiptavinir nýta lausnina til að panta matvöru heim að dyrum, skipuleggja matarinnkaupin og fá yfirsýn yfir matarútgjöldin. Krónan er lágvöruverðsverslun sem leggur áherslu á hollustu, umhverfismál og snjallar lausnir. Renata starfaði áður á tæknisviði Landsbankans við greiningu á tækifærum til sjálfvirknivæðingar í innri og ytri ferlum bankans. Fyrir það starfaði hún hjá Meniga og CCP.
Fleiri fréttir og pistlar
Næstum því ótrúlegur endir á hröðu gervigreindarári. Ný sería af gervigreindarmódelum frá OpenAI, o3, virðist geta leyst flest huglæg verkefni betur en bestu mannlegu sérfræðingar á hverju sviði - og er með þekkingu flestra sérfræðinga á flestum sviðum!
Þessar breytingar eru fyrst að gerast rólega eins og á árinu sem er að líða, en síðan munu þessar breytingar gerast mjög hratt, kannski of hratt. Skapandi gervigreind er þegar farin að breyta heiminum og mun halda áfram að hafa mikil áhrif, bæði með jákvæðum afleiðingum og með því að skapa krefjandi áskoranir fyrir samfélög, fyrirtæki og stjórnvöld.
https://x.com/OpenAI/status/1870186518230511844
https://www.wired.com/story/openai-o3-reasoning-model-google-gemini/
https://x.com/fchollet/status/1870169764762710376
Stjórn Stjórnvísi óskar þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla. Við þökkum samstarfið á árinu og hlökkum til að takast á við ný og spennandi verkefni með þér á komandi ári.
Stjórn og framkvæmdastjóri Stjórnvísi.
Anna Kristín Kristinsdóttir, Auður Daníelsdóttir, Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri, Haraldur Bjarnason, Ingibjörg Loftsdóttir, Laufey Guðmundsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Matthías Ásgeirsson, Snorri Páll Sigurðsson og Stefán Hrafn Hagalín
Hér eru vefslóðir frá pallborðsumræðunum á árlegri ráðstefnu sem Dubai Future Forum hélt fyrr í mániðnum. Gæti verið áhugavert að renna yfir efnið og vakta áhugaverð atriði:
https://www.youtube.com/live/b6lguB_vpjs?si=pgePVUxGSHOKdvvc
https://www.youtube.com/live/frI9bJSE3ME?si=5ezTPte5DBUC6fMK
- Inclusive Design and Policy: Moving beyond compliance to create accessible environments in workspaces and public life that respect autonomy and dignity.
- Intersectional Experiences: How disability intersects with race, gender, class, and other identities, creating unique challenges and opportunities for equity in both professional and social settings.
- Representation and Leadership: The critical need for disability-inclusive leadership and decision-making in workplaces, communities, and societal institutions.
- Cultural and Systemic Change: How workplaces and societies can address ableism, promote belonging, and establish sustainable frameworks for inclusion in all areas of life.
Sjóvá býður til morgunverðarfundar um heita vinnu á Hótel Reykjavík Natura 20. nóvember kl. 9-11 🔥
Morgunverður í boði frá kl. 8:30.
Síðustu misseri hafa komið upp alvarlegir brunar bæði hér á landi og erlendis á bygginga- og framkvæmdasvæðum. Því miður eru brunar tengdir logavinnu of algengir og því vert að spyrja hvort eitthvað megi betur fara í þeim efnum?
Við fáum til liðs við okkur sérfræðinga á sviði bruna- og tryggingamála sem verða með áhugaverð erindi um málefnið, sjá nánari upplýsingar í meðfylgjandi auglýsingu.
Það gleður okkur sérstaklega að fá Piu Ljunggren, sérfræðing hjá Brandskyddsföreningen (Eldvarnaeftirlitinu í Svíþjóð) til liðs við okkur en hún verður með spennandi erindi um þeirra reynslu.
Brandskyddsföreningen býður upp á þjálfun og vottun fyrir aðila sem fást við heita vinnu á fimm tungumálum víðs vegar um Svíþjóð og hefur þetta fyrirkomulag verið þar við lýði í yfir þrjá áratugi, eða allt frá árinu 1990.
Áhugasöm eru vinsamlega beðin um að skrá mætingu með því að smella á eftirfarandi tengil: Morgunfundur um heita vinnu - Sjóvá
Takmarkaður sætafjöldi, hlökkum til að sjá þig!