Fundurinn var tekinn upp og er aðgengilegur á facebooksíðu félagsins. Fyrirtæki búa orðið við hraðar breytingar í umhverfi sínu og munu gera í vaxandi mæli eftir því sem á líður. Samspil menningar og innleiðingar mun því skipta sífellt meira máli. Fyrirlesarar voru:
Bjarni Snæbjörn einn þekktasti og reyndasti stefnumótunarráðgjafi landsins og einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins DecideAct sem skráð er í Nasdaq-kauphöllinni í Danmörku.
Tinni Jóhannesson partner og ráðningarstjóri Góðra samskipta. Áður starfaði hann hjá Capacent og Waterstone Human Capital í ráðningum og ráðgjöf. Hjá Capacent þróaði Tinni ásamt öðrum ráðgjöfum aðferðafræði til að staðsetja vinnustaðamenningu fyrirtækja og stofnana.