18. janúar 2020 09:52
Mikill fjöldi Stjórnvísifélaga mætti á fund í Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem fjallaði um hvernig tengslanetið getur hjálpað þér við að komast á þann stað sem þú vilt. Á þessum fundi sem var á vegum faghóps um þjónustu-og markaðsstjórnun fóru þær Ósk Heiða og Silja Úlfars yfir það hvernig þær hafa skapað tækifæri úr sýnileika og hvernig þær nota tól og tæki markaðsfræðinnar í bland við lærdóm úr keppnisíþróttum til að ná árangri, hvor á sínu sviði.
Ósk Heiða segir að maður þurfi að vera trúr því sem maður stendur fyrir. Ef þú ætlar að láta til þín taka þá þarftu að láta aðra vita af þér. Þú getur skilað ótrúlegum árangri innan þíns fyrirtækis en enginn annar tekur eftir því. Ósk Heiða er ekki vön að bíða eftir því að vera boðið upp. Hún heldur ballið sjálf og býður öðrum að vera með. Ef þú spilar til að vinna eru tækifærin endalaus. „Taktu stjórnina“. Ósk Heiða sagði mikilvægt að hver og einn spyrði sig: Hvað vil þú? Hvert stefnir þú? Ertu sátt/ur? Það má stefna langt og það má segja það upphátt!. Vertu með lyfturæðuna þína á hreinu. Hvaða hughrif viltu skilja eftir. LinkedIn er uppáhaldssamfélagsmiðill Ósk Heiðu. Hún hvetur alla til að vera á Linkedin. Þar er plattform til að tengjast öðru fagfólki og læra. Þú hefur nafnið þitt, mynd, starfsferil, greinar sem þú skrifar. Mikilvægt er að uppfæra Linkedin. Grundvöllur alls áður en þú ferð að sækja og hvað þú vilt er að skilgreina sig. 1. Hver ertu? 2. Staðfærsla 3. Aðgreining 4. Markhópur. Hafðu sterka innkomu sem byggir á hæfileikum og sérþekkingu. Þegar einhver flettir þér upp, þá verður að sjást strax hver þú ert og hvað þú hefur fram að færa. Nýttu öll tækifæri, sinntu miðlinum, m.a. með því að byggja upp sambönd og gefa af þér, skrifa greinar, kommenta og taka þátt. Til eru endalausir möguleikar til að koma rödd þinni og skoðunum á framfæri. Hafðu þó samræmi milli þess sem þú segir, gerir og það sem þú stendur fyrir. Til hverra viltu ná? Hvaða fólki viltu tengjast? Nýttu faglegt efni til þess að vekja athygli með þín markmið að leiðarljósi. Þetta er í raun fótboltavöllur, þú stefnir fram öllu þín besta liði. Spilaðu til að vinna. Tengslanet er ekki einungis þeir sem þú kynnist í grunnskóla, Ósk Heiða hvatti alla til að vera djarfir, leggja sig fram og vera trúir sjálfum sér. Ef þú ert að leita að vinnu segðu þá fólki frá því, ekki læðast. Segðu frá því hvað þú kannt, gerir vel og settu sérstaka áherslu á það sem þú vilt gera meira af. Linkedin er faglegur vettvangur sem þú getur nýtt þér til þess að leita að næsta tækifæri. Þarna er tækifærið til að tengjast áhugaverðum leiðtogum. Hafðu skoðun og segðu hana því þín rödd og reynsla er einstök. Leyfðu henni að heyrast, það er það sem gerir þig áhugaverðan, lykillinn er að vera alltaf sannar. Þegar það eru viðburðir, mættu! Aldrei fara heim fyrr en þú ert búinn að tala við fjóra nýja að lágmarki. Ef þú heldur viðburðinn talaðu þá við a.m.k. tíu manns. Reyndu alltaf að bjóða fólki inn í hópinn þinn og segðu hvað verið er að ræða, leyfðu fólki að vera með. Leggðu frá þér símann á viðburðum, sestu hjá einhverjum nýjum. Sendu fyrirlesara póst á Linkedin eða í netfangi ef þú hefur áhugaverða spurningu, sýndu áhuga. Forvitni er mikilvæg til að þróast.
Allt sem þú veitir athygli það vex. Því meiri orku sem þú setur í tengslanetið því meiri tækifæri og árangri nærðu. Lærdómur Ósk Heiðu er að gera meira til að stækka, því meira sem þú reynir á þig, því meiri er þinn fag-og persónulegi vöxtur. Aldrei minnka þig eða draga úr þínum krafti til að láta öðrum líða betur. Þegar þú ert með rétta fólkinu þá hvetur það þig áfram. Gerðu meira af því sem þér þykir skemmtilegt. Því meira skemmtilegt, því öflugri verður þú. Það á að vera gaman því það er nóg LJÓS. Að lokum hvatti Ósk Heiða alla til að senda sér vinabeiðni á Linkedin.
Silja Úlfarsdóttir er spretthlaupari og segir að samnefnarinn í sínu lífi sé að hún sé leikstjóri. Leikstjórar bera ábyrgð á greiningu hugmyndavinnu og listrænni framsetningu þeirra verkefna sem þeir stjórna hverju sinni. Leikstjórar skipuleggja æfingar og sjá um að stjórna þeim. Silja Úlfars hefur þjálfað karlalandsliðið í hlaupa og krafttímum. Þá er hún frökk, spyr og hefur engu að tapa. Silja er óhrædd við að prófa tækifæri. Silja starfaði sem íþróttafréttakona í stuttan tíma sem gaf henni margar tengingar. Mest starfar hún sem þjálfari en datt í hug að sækja um sem sölu-og markaðsstjóri Adidas. Ef Silju langar í eitthvað þá prófar hún. Ljónshjarta eru samtök fyrir börn sem hafa misst foreldra og þar er Silja formaður í dag. Lærdómurinn sem Silja tekur úr keppnisíþróttum er að setja sér markmið, þau ganga ekki alltaf upp en samt heldurðu áfram. Þú þarft alltaf að standa upp og halda áfram. Verkefni eru til að leysa þau. Það er dýrmæt reynsla. Silja segir „Finndu það sem þér þykir skemmtilegt og drífur þig áfram, þefaðu uppi þá þekkingu sem þig vantar, tengdu þig við fólk sem kann hluti sem þú kannt ekki. Það gerist ekkert nema þú gerir það sjálfur.“ Í framhaldi fór hún að þjálfa og skellti sér í skóla. Silja notar Instagram því þar er íþróttaheimurinn. Nökkvi er dæmi um áhrifavald á Instagram sem Silja hefur fylgt eftir því hann er með góð skilaboð. Silja er dugleg að spyrja spurninga því oft vantar fólki þær. Klefinn www.klefinn.is er verkefni sem Silja og Andri Úlfars eru með. Silja sagði frá því hvernig verkefnið Klefinn varð til. Íþróttafréttir eru að mest öllu leyti um bolta því þurfa sundmenn, hlauparar og aðrir að erfiða við að fá styrki því fáir þekkja þá. Silja og Andri sáu að það voru litlar sem engar upplýsingar um hverjir eru að stefna á Ólympíuleikana og hverjir eru búnir að ná lágmarkinu. Þau fundu í framhaldi 11 íþróttamenn sem sögðu upphátt að þau hefðu áhuga á að fara á Ólympíuleikana. Að vera íþróttamaður er markaðssetning. Nú eru þau með 4 karla og 7 konur. Þau bjuggu til heimasíðu og leituðu til sérfræðinga til að aðstoða sig við verkefnið sem felst í sýnileika á íþróttafólki sem hefur áhuga á að komast á leikana og vantar styrki til að geta stundað sína íþrótt. Sumir ná lágmarkinu og aðrir ekki. Þau nota gestapenna til að skrifa á síðuna t.d. um næringu og síðan var mikilvægt að komast í fjölmiðlana. Business casið er að fá tekjur í gegnum síðuna til að styrkja íþróttamennina sem eru að stefna á Ólympíuleikana. Allt snýst þetta um tengslanet og þora að spyrja. Í raun eru þau að gera það sem ÍSÍ er að gera. Lærdómurinn er að spyrja og búa til greinar. Allt snýst um að skapa virði fyrir aðra og skipuleggja leiðina. Spurðu og þá gerast hlutirnir.