6
sep.
2022
6. sep. 2022
12:00 - 12:40
/
Streymi og í stofu M220 í
Click here to join the meeting
Faghópur um þjónustu- og markaðsmál hefur starfsárið af krafti þann 6. september kl. 12.
Samfélagsmiðillinn og myndbandsveitan TikTok hefur á stuttum tíma orðið einn vinsælasti samfélagsmiðillinn í heimi og mörg fyrirtæki byrjað að nýta sér vettvanginn í kjölfarið í markaðslegum tilgangi.
Ásmundur Atlason, markaðsstjóri Domino's og Unnur Aldís Kristinsdóttir, markaðsstjóri Smitten munu segja okkur frá því hvernig TikTok hefur haft áhrif á þeirra markaðsmál og hvernig þau hafa náð árangri með sitthvorri áherslunni.
Dominos á Íslandi voru ein af fyrstu fyrirtækjunum á Íslandi til að nýta sér TikTok. Efnið þeirra hefur vakið heimsathygli og eru þau með yfir 160 þúsund fylgjendur.
Smitten er örtvaxandi sprotafyrirtæki sem hefur verið að teygja sig til Danmerkur. TikTok hefur verið eitt helsta vopnið fyrir góðum vexti í Danmörku með notkun TikTok ads og áhrifavalda þarlendis.
Viðburðurinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík í stofu M220, en einnig verður hægt að horfa í streymi.
Dagskrá
12:00-12:15 Ásmundur Atlason markaðsstjóri Domino's
12:15-12:30 Unnur Aldís Kristinsdóttir markaðsstjóri Smitten
12:30-12:40 Spurningar og spjall
Fundarstjóri viðburðarins verður Lísa Rán Arnórsdóttir, vörustjóri hjá Smitten.