VOX Suðurlandsbraut, Reykjavík
Stjórn Stjórnvísi ,
Stjórn Stjórnvísi fundar árlega með fagráði félagsins til að fá góð ráð og stuðning við stefnu félagsins.
Fagráð Stjórnvísi 2022-2023
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Vök Baths (2022-2024)
Eyþór Ívar Jónsson, Akademías (2022-2024)
Guðfinna S. Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri LC Ráðgjöf (2021-2023)
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár (2022-2024)
Þorkell Sigurlaugsson, viðskiptafræðingur (2021-2023)
Sigríður Harðardóttir, formaður stjórnar verður fulltrúi stjórnar á þessum fundi.
Fundargerð frá starfsdegi stjórnar
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík.
25. maí 2022 kl. 12:20-15:45
Þátttakendur 25. maí 2022:
Auður Daníelsdóttir, Baldur Vignir Karlsson, Gunnhildur Arnardóttir, Haraldur Bjarnason, Lilja Gunnarsdóttir, Sigríður Harðardóttir, Stefán Hrafn Hagalín
Fjarverandi: Ósk Heiða Sveinsdóttir, Falasteen Abu Libdeh, Laufey Guðmundsdóttir.
Dagskrárliðir
- Samskiptasáttmáli. Fundurinn hófst með því að Sigríður Harðardóttir formaður stjórnar Stjórnvísi bauð alla velkomna og fór yfir dagskrá og markmið fundarins. Formaður Stjórnvísi kynnti hugmynd að samskiptasáttmála stjórnar 2022-2023 þar sem m.a. var rætt um að: 1. Mæta undirbúin á stjórnarfundi 2. Mæta tímalega 3. Taka ábyrgð á verkefnum 4. Hafa uppbyggilega gagnrýni 5. Samskipti opin og eðlileg 6. Vera á staðnum.
- Yfirferð á lögum og siðareglum. Sigríður hvatti stjórnarmenn til að líta í sumar yfir lögin og siðareglurnar. Á fyrsta fundi stjórnar í haust verður farið yfir lögin og skoðað hvort einhverju skuli breyta og það sama á við um siðareglurnar. Í framhaldi kynntu stjórnarmenn sig með því að segja örstutt frá sér. Einnig urðu umræður um hvar stjórn vill eiga samskipti og var ákveðið að halda áfram að eiga samræður í tölvupóstum, á facebook undir: „Stjórn Stjórnvísi“ og á Teams.
- Rýni á stefnu Stjórnvísi. Þórunn M. Óðinsdóttir fyrrverandi formaður Stjórnvísi og lean sérfræðingur með meiru fór yfir framtíðarsýn, stefnu og gildi Stjórnvísi.
- Áætlun og lykilmælikvarðar. Áætlun félagsins stenst og eru tekjur komnar yfir áætlun. Áætlun félagsins er uppfærð reglulega allt árið og er aðgengileg í Sharepoint.
- Farið var yfir aðganga stjórnar að Sharepoint, Teams, Facebook og skráning stjórnar í faghópinn „stjórn Stjórnvísi“.
- Þema ársins 2022-2023 Nýkjörin stjórn kom með fjölda hugmynda að þema ársins. Niðurstaðan var sú að stjórn sammæltist um að þema ársins yrði „GRÓSKA“. Farið verður betur yfir útfærsluna í haust. Varaformaður Stjórnvísi var kosinn Stefán Hrafn Hagalín og ritari Gunnhildur Arnardóttir.
- Áhersluverkefni starfsársins verða þrjú: (sjá mælikvarða neðar í fundargerð).
- Miklar umræður urðu um orðið „,stjórnun“ hvað felst í hugtakinu „stjórnun“. „Hlutverk Stjórnvísi er að efla gæði stjórnunar á Íslandi með því að skapa hvetjandi vettvang fyrir þekkingarmiðlun“. Ákvörðun tekin um að heyra í faghópunum í haust varðandi hugtakið „stjórnun“ sem er alltaf að breytast. Ætti að bæta aftan við orðið stjórnun „og faglegrar starfsemi“?.
- Hlutverk Stjórnvísi: Efla gæði stjórnunar á Íslandi með því að skapa hvetjandi vettvang fyrir þekkingarmiðlun. Tekin var sú ákvörðun að breyta orðalaginu: „ Við eflum gæði stjórnunar á Íslandi með því að skapa hvetjandi vettvang fyrir þekkingarmiðlun“.
- Stjórn var sammála um að framtíðarsýn félagsins 2021-2025 væri skýr „Að vera drifkraftur í umræðu um faglega stjórnun meðal félagsmanna auk þess að vera eftirsóttur valkostur í þekkingarleit, miðlun og tengslamyndun. Þessu var einnig breytt í: „Við erum drifkraftur í umræðu um faglega stjórnun meðal félagsmanna auk þess að vera eftirsóttur valkostur í þekkingarleit, miðlun og tengslamyndun.
- Eitt af þrem gildum félagsins er Framsækni: Við sækjum fram af krafti og horfum til nýjustu strauma og stefna í faglegri stjórnun. Spurning með að þróa þetta áfram m.a.v. hlutverkið okkar.
Í undirmarkmiðum var ákveðið að breyta eftirfarandi: - Framkvæmdastjóri félagsins hefur leiðtogahæfileika, er sýnilegur og virkur – verður eftir breytingu: „Er styðjandi og virkur“.
- Stjórnin efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins. Breyta í ,,Stjórn félagsins“
- Stjórnvísi er leiðandi vettvangur umræðu um faglega stjórnun - Skoða orðið „stjórnun“ í samræmi við hlutverk.
- Stjórnvísi þróast í takt við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna og atvinnulífsins Breyta í: Stjórnvísi þróast í takt við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna, atvinnulífsins og samfélagsins.
- Stjórnvísi er aðlaðandi og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu - breyta í ,,áhugaverður’’
- Virkni allra faghópa sem skráðir eru á vefsíðu félagsins Breyta í: Virkni allra faghópa er skráð á vefsíðu félagsins.
- Fagmennska er ávallt höfð að leiðarljósi í öllum okkar störfum. Taka út punktinn fyrir aftan setninguna.
- Einnig þykir stjórn mikilvægt að hvetja alla faghópa til að minnast á tengslanet í upphafi allra funda.
- Ásýnd og vöxtur - Stefán, Haraldur, Ósk Heiða
- Stuðningur við stjórnir faghópa - Lilja Gunnarsdóttir, Auður, Falasteen
- Útrás/gróska - Baldur, Laufey, Sigríður
- Kynning á reglubundnum verkefnum stjórnar
- Tímasetning var ákveðin á helstu viðburðum Stjórnvísi og þeir settir inn á dagatal félagsins.
Ágúst 2022: Fyrirmyndarfyrirtæki ársins viðurkenningarathöfn (Nauthóll hádegisverður)
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur og Jón Gunnar Borgþórsson
Ágúst 2022: Kick off fundur
Hvar: Nauthóll, Gróska og/eða beint streymi.
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur, Sigríður.
September 2022
Þann 1. september verður haustdagskrá Stjórnvísi send út á alla aðila
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Október 2022
Haustráðstefna Stjórnvísi - fimmtudagur 7.10.2022
Þema GRÓSKA – sent verður á milli í sumar hugmyndir að fyrrirlesurum.
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, Laufey, Stefán Hrafn, Haraldur, Baldur.
Október/nóvember – 26.október 2022
Fundur með fagráði
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur og Sigríður
Janúar 2023
5. janúar. Nýársfagnaður –
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Hvar: Marel
Efni verður valið á Kick off fundinum í ágúst. Stjórnir faghópanna ákveða hvaða efni er brýnast. Athuga hvort Marel vilji bjóða heim.
Janúar 2023
Íslenska ánægjuvogin 2022 afhent 13. janúar 2023.
Ábyrgðaraðili:Gunnhildur
Feb/mars 2023
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2023
Ábyrgðaraðili:Gunnhildur
Tímabil:Haldin á tímabilinu 14.febrúar 2022
Þema: GRÓSKA
Apríl/maí, 2023
Aðalfundir faghópa
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Maí 2023, 10.maí 2023.
Aðalfundur Stjórnvísi
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Maí 2023, 10.maí 2023.
Stjórnarskiptafundur:
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Júní 2023
Samfélagsskýrsla ársins afhent. Samstarfsverkefni Festu, Stjórnvísi og Viðskiptaráðs Íslands.
8.júní 2023
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur
Ágúst 2023 25.ágúst 2023.
Fyrirmyndarfyrirtæki 2022.
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, Jón Gunnar
Tímabil:
- Fundartími og staðsetningu stjórnarfunda. Niðurstaðan var sú að stjórnarfundir verða haldnir fyrsta þriðjudag í mánuði kl.11:00-12:00. Stjórn mun skiptast á að bjóða heim, ef eitthvað kemur upp á er alltaf hægt að halda fundi í Innovation House og á Teams. Ef áhugi er að bjóða í mat eða skoðunarferð um vinnustað gestgjafa er það gert um leið og fundi lýkur kl.12:00.
- Ágúst Kringlukráin
- September Teams
- Október Grand Hótel (í beinu framhaldi af haustráðstefnu)
- Nóvember Teams
- Desember Vox
- Janúar Teams
- Febrúar Háskólinn í Reykjavík
- Mars Teams
- Apríl Innovation House
- Maí Teams
- Kosning varaformanns og ritara næsta starfsár
- Varaformaður er Stefán Hrafn Hagalín
- Ritari er Gunnhildur Arnardóttir
Sigríður kynnti áhersluverkefni síðustu ára.
2016-2017
- Fagna 30 ára afmæli.
- Innviðir félagsins og heimasíða og stjórnun
- Markaðsmál og sýnileiki
- Tengslamyndun, viðburðir og samstarf
2017-2018
- Varðveita sögu félagsins
- Markaðsmál og vefur
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Mælingar og starfsemi félagsins
2018-2019
- Markaðsmál
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Heimasíða
- Mælaborð
2019-2020
- Stefnumótun 2020-2025
- Sölu of markaðsmál
- Stuðningur við stjórnir faghópa
2020-2021
- Markaðsmál og sýnileiki
- Markaðsmál og sýnileiki
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Samstarf við aðra um jafningjafræðslu
- 2021-2022
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Útrás
- 2022-2023 GRÓSKA
- Ásýnd og vöxtur
- Stuðningur við stjórnir faghópa
- Útrás
2022-2023 (þrjú áhersluverkefni – í hverju felast þau – mælikvarðar)
oo= rauntíma mælaborð á síðu Stjórnvísi www.stjornvisi.is
ooo= mælt árlega í viðhorfskönnun til félagsmanna
- Ásýnd og vöxtur - Stefán Hrafn, Haraldur, Ósk Heiða.
i. Fjölgun fyrirtækja oo
- Fjölgun fyrirtækja með 200 eða fleiri starfsmenn oo
- Fjölgun fyrirtækja með 100-199 starfsmenn oo
ii. Fjölgun á heildarfjölda notenda (innri markaðssetning fyrirtækja) oo
iii. Fjölgun virkra félaga oo
iv. Fjölgun nýrra virkra félaga oo
v. Aukning á nýskráningum í mánuðinum oo
vi. Fjölgun nýrra háskólanema oo
vii. Fagmennska sé ávallt höfð að leiðarljósi í öllum störfum ooo
viii. Stjórnin efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins ooo
ix. Stjórnvísi sé áhugaverður og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu ooo
x. Stjórnvísi þróist í takt við við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna og atvinnulífsins ooo
xi. Framsæknir og hæfir einstaklingar starfi af heilindum fyrir félagið ooo
xii. Framkvæmdastjóri félagsins hafi leiðtogahæfileika, sé styðjandi og virkur ooo
- Stuðningur við stjórnir faghópa Lilja, Auður, Falasteen
i. Fjölgun viðburða oo
ii. Fjölgun félaga á fundum oo
iii. Aukning á virkni faghópa oo
iv. Aukning á félagafjölda í faghópum oo
v. Aukning á virkum fyrirtækjum oo
vi. Viðburðir séu sýnilegir og auglýstir tímanlega ooo
vii. Hækkun á NPS skori oo
viii. Félagar upplifi sig auðugri af þekkingu um stjórnun og leiðtogafærni ooo
ix. Félagar öðlist aukið tengslanet með þátttöku í félaginu ooo
x. Ábendingar eigi sér skýran farveg ooo
xi. Stöðugt sé unnið að umbótum ooo
- Í upphafi hvers fundar bendi ábyrgðaraðilar á að eftir fundinn verði send út stutt könnun. Allir hvattir til að gefa sér örstutta stund og svara. Þar er tilvalið að koma með ábendingu um hvað betur má fara.
xii. Stjórn sé í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna ooo
xiii. Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald eru skráðir og unnið eftir þeim. ooo
- Myndbönd
- Stafræn fræðsla
- Útrás/Gróska Baldur, Laufey, Sigríður,
i. Dagskrá Stjórnvísi verði aðgengileg fyrir alla landsbyggðina
ii. Fjölgun fyrirtækja á landsbyggðinni
iii. Fjölgun kynninga og fyrirlesara af landsbyggðinni
iv. Fjölgun erlendra fyrirlesara
________________________________________________________________________________
Microsoft Teams meeting
Join on your computer or mobile app
Click here to join the meeting
________________________________________________________________________________