Óskað er eftir framboðum til stjórnar Stjórnvísi starfsárið 2024-2025(26) frestur til framboðs rennur út 1. maí 2024. Kosið verður um 1 sæti í stjórn og formann Stjórnvísi, alls 2 sæti.
Eitt framboð hefur borist í embætti formanns fyrir starfsárið 2024-2025:
Stefán Hrafn Hagalín formaður Stjórnvísi 2023-2024. Stefán hefur setið í stjórn Stjórnvísi undanfarin fjógur ár þar af eitt ár sem formaður. Á aðalfundi er formaður kosinn sérstaklega til eins árs í senn og getur setið í 2 ár að hámarki.
Í stjórn eru 9 stjórnarmenn kosnir til eins eða tveggja ára í senn með möguleika á framlengingu án þess að kosið sé um þá og geta að hámarki setið í 4 ár. Eftirtalin framboð eru komin sem ekki þarf að kjósa um og munu skipa stjórn Stjórnvísi 2024-2025
1. Anna Kristín Kristinsdóttir, Digital Platform Adoption Manager, Marel, formaður faghóps um upplýsingaöryggi (2023-2025)
2. Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar (2024-2025) kostin í stjórn (2022-2024)
3. Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkenni. (2024-2025) og (2023-2024) kosinn í stjórn (2021-2023)
4. Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, VIRK, formaður faghóps um Heilsueflandi vinnuumhverfi (2023-2025)
5. Laufey Guðmundsdóttir, sýningarstjóri Jarðhitasýningar (2024-2025) og (2023-2024) kosinn í stjórn (2021-2023)
6. Lilja Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg, sjálfstætt starfandi markþjálfi og teymisþjálfi (2024-2025) kosin í stjón (2022-2024)
7. Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, formaður faghóps um innkaupstýringu (2023-2025)
Kosið verður um eitt sæti í stjórn Stjórnvísi. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér:
1. Matthías Ásgeirsson, VSÓ - formaður og stofnandi faghóps um aðstöðustjórnun.
2. Sunna Arnardóttir, framkvæmdastjóri Vinnuhjálpar og formaður faghóps um mannauðsstjórnun.
Kosið verður í fagráð félagsins.
Davíð Lúðvíksson, sérfræðingur hjá Rannís (2023-2025)
Guðrún Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Strategia (2023-2025)
Sigríður Harðardóttir, mannauðsstjóri Norðuráls (2024-2026)
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO (2024-2026
Kosnir verða tveir skoðunarmenn til 2ja ára og bjóða eftirtaldir sig fram:
Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2025-2027)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2025-2027
Dagskrá aðalfundar
Venjuleg aðalfundarstörf:
- Kjör fundarstjóra og ritara.
- Skýrsla formanns.
- Skýrsla framkvæmdastjóra.
- Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
- Breytingar á lögum félagsins.
- Kjör formanns.
- Kjör stjórnarmanna til næstu ára
- Kjör fagráðs.
- Kjör skoðunarmanna reikninga.
- Önnur mál.
Ársreikningurinn verður aðgengilegur á vefsíðu félagsins strax að loknum aðalfundi. Þeir sem óska eftir útprentuðum ársreikningi er bent á að óska eftir því sérstaklega við framkvæmdastjóra félagsins gunnhildur@