Þann 11. mars var sendur póstur til allra Stjórnvísifélaga og óskað eftir áhugasömum aðilum að koma í stjórn faghópsins. Alls sýndu 16 aðilar áhuga og verður á næstu dögum mynduð 10 manna stjórn. Nú þegar er búið að vekja athygli á áhugaverðum viðburði í næstu viku á vegum félagsmálaráðuneytisins í samvinnu við Evrópuráð og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Þú bókar þig hér.
Hér má sjá markmið faghópsins: Erlendum ríkisborgurum fer fjölgandi á íslenskum vinnumarkaði og því mikilvægt að stjórnendur aðlagi sig breyttu vinnuumhverfi. Markmið faghópsins er að skapa vettvang fræðslu, upplýsingamiðlunar og umræðu fyrir stjórnendur og fagfólk sem starfa við fjölmenningarlega stjórnun eða hafa áhuga á þeim málaflokki. Fjölmenningarleg stjórnun snýst um að stjórna og styðja starfsfólk af erlendum uppruna, allt frá ráðningu til starfsloka. Þessi málaflokkur er nýr á Íslandi því erlendir starfsmenn byrjuðu ekki að koma til Íslands í miklu mæli fyrr en um síðastu aldarmót. Þess vegna er brýn þörf á miðlun upplýsinga, faglegri reynslu og aukinni þekkingu á öllum þáttum fjölmenningarstjórnunar á Íslandi.
Fyrirkomulag starfseminnar er þannig að á hverjum fundi verður kynnt ákveðin viðfangsefni sem byggist á þörfum hópsins og að lokum fara fram umræður. Hópurinn stendur einnig fyrir ráðstefnum og miðlar faglegu efni um málefnið.