Stefna Stjórnvísi rýnd og uppfærð til að takast á við breyttan veruleika.

Á fundi með fagráði Stjórnvísi í desember sl. hvatti fagráðið til þess að stefna félagsins yrði rýnd sem fyrst til þess að viðhalda/bæta enn frekar þjónustu við félagsmenn í nýjum veruleika.   Það var því eitt af fyrstu verkum stjórnar á nýju ári að hittast til að velta fyrir sér hvernig mögulega hægt væri að þróa stefnu Stjórnvísi áfram m.a.v. raunveruleikann sem mun blasa við okkur eftir Covid.  Þórunn M. Óðinsdóttir stjórnunarráðgjafi sem situr í fagráði Stjórnvísi og fyrrverandi formaður félagsins bauð fram krafta sína til þess að leiða þá vinnu og má sjá uppfærða stefnu Stjórnvísi hér.  

Hlutverk Stjórnvísi:

Efla gæði stjórnunar á Íslandi með því að skapa hvetjandi vettvang fyrir þekkingarmiðlun, umræður og tengslamyndun.


Framtíðarsýn Stjórnvísi 2020:

Að vera drifkraftur í umræðu um faglega stjórnun auk þess að vera eftirsóttur valkostur í þekkingarleit, miðlun og tengslamyndun. 


Gildi Stjórnvísi:

Framsækni: Við sækjum fram af krafti og horfum til nýjustu strauma og stefna í faglegri stjórnun
Fræðsla: Við miðlum fjölbreyttri þekkingu og reynslu
Fagmennska: Við höfum vönduð vinnubrögð að leiðarljósi og sækjum þekkingu til öflugra einstaklinga hverju sinni.

 

Meginmarkmið:

Framsæknir og hæfir einstaklingar starfa af heilindum fyrir Stjórnvísi
  • Stjórn félagsins er í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna
  • Framkvæmdastjóri félagsins hefur leiðtogahæfileika, er sýnilegur og virkur
  • Stjórnin eflir og viðheldur trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfar skv. stefnu félagsins
  • Regluleg endurnýjun þátttakenda er í stjórnum faghópa

Stjórnvísi er leiðandi vettvangur umræðu um faglega stjórnun

  • Stjórnvísi er aðlaðandi og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu
  • Félagar upplifa sig auðugri  af þekkingu um stjórnun og leiðtogafærni
  • Félagsmenn öðlast aukið tengslanet af þátttöku í félaginu
  • Stjórnvísi þróast í takt við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna og atvinnulífsins

Fagmennska er ávallt höfð að leiðarljósi í öllum okkar störfum.

  • Virkni allra faghópa sem skráðir eru á vefsíðu félagsins
  • Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald skráðir og unnið eftir þeim
  • Viðburðir ávallt sýnilegir og auglýstir a.m.k. tveimur vikum fyrir auglýstan tíma
  • Ábendingar og hugmyndir eiga sér skýran farveg og stöðugt er unnið að umbótum


Árangur þessara markmiða er mældur árlega af stjórn Stjórnvísi.

 

Fleiri fréttir og pistlar

Meginstraumar hnattrænna breytinga

Komin er skýrsla frá Dubai Future Foundation sem lýsir 10 meginstraumum sem munu móta heiminn okkar í náinni framtíð. Framlag skýrslunnar býr okkur undir það sem framundan er og grípa tækifærin sem hugsanlega koma í kjölfar þessara breytinga. Skýrslunni er ætlað að kynda undir nýsköpun, hvetja til ákvarðanna og knýja stjórnvöld, stofnanir og einstaklinga að vera virk í að móta sínar framtíðir. Hægt er að nálgast skýrsluna hér: https://framtidarsetur.is/2025/04/01/meginstraumar-hnattraena-breytinga/

Alþjóða dagur framtíðar, 2025. Hnattræn umræða um betri framtíð fyrsta mars næstkomandi

Frá faghópi framtíðarfræða

Þann fyrsta mars mun Millennium Project, sem Framtíðarsetur Íslands er aðili að, ásamt fimm öðrum alþjóðlegum samtökum halda upp á 12. árlega Alþjóða dag framtíðar — einstakt 24 tíma netsamtal um allan heim þar sem möguleikar sameiginlegrar framtíðar okkar verða til umræðu.

Dagurinn hefst klukkan 12 á hádegi í Nýja-Sjálandi. Þetta viðburðarríka samtal mun færast vestur á við klukkutíma fyrir klukkutíma og ljúka 24 klukkustundum síðar á Hawaii. Almenningi er boðið að taka þátt hvenær sem er til að hlusta, deila hugmyndum og ræða hvernig megi skapa betri framtíð ásamt framtíðarfræðingum. Hugsuðum og virkum samfélög um allan heim.

Frekari upplýsingar og skráning er á eftirfarandi vefslóðum:

Read the announcement.

Register to attend

Watch the video promo

 

Tólf hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025

Smelltu hér til að sjá myndir frá afhendingunnimyndband, umsagnir og þá sem voru tilnefndir. Tólf einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2025 sem veitt voru í dag við hátíðlega athöfn á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands. Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum auk þess sem veitt voru sérstök hvatningarverðlaun en þetta er í sextánda sinn sem Stjórnunarverðlaunin eru afhent.
Handhafar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2025 eru eftirtaldir:  Í flokki yfirstjórnenda Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innnes, í flokki millistjórnenda þær Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins og Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og vellíðunar hjá Bláa Lóninu. Í flokki frumkvöðla stofnendur Good Good þeir Jóhann Ingi Kristjánsson, Agnar Tryggvi Lemacks og Garðar Stefánsson. Stofnendur Indo, Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson og stofnendur Evolytes þau Íris Eva Gísladóttir og Mathieu G. Skulason. Þessar þrjár ólíku lausnir eiga það allar sameiginlegt að snúa að bættum lífsgæðum og árangri fyrir fjölskyldur og rekstur heimila. Auk þess voru veitt sérstök hvatningarverðlaun fyrir frumkvölastarf innan rótgróinna fyrirtækja, þau hlutu Bjargey Harðardóttir meðeigandi og stjórnandi hjá 66 Norður og Eyjólfur Pálsson stofnandi Epal.   
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru árlega veitt stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Yfirlýst markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi. Einnig er þeim ætlað að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og frumkvöðla auk þess að örva umræðu um faglega stjórnun. 

Í dómnefnd sátu

Borghildur Erlingsdóttir, formaður dómnefndar og forstjóri Hugverkastofunnar

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs

Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma og stjórnarkona

Salóme Guðmundsdóttir, ráðgjafi og stjórnarkona

Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Ritari dómnefndar er Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi

 

 

Listi yfir þá sem eru tilnefndir til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2025 - Innilegar hamingjuóskir

Hér má sjá alla þá sem tilnefndir eru til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2025.
Útnefnt verður í þremur flokkum: Yfirstjórnendur - millistjórnendur - frumkvöðlar auk þess sem veitt verða sérstök hvatningarverðlaun.  
Forseti Íslands Frú Halla Tómasdóttir mun afhenda verðlaunin á Grand Hótel Háteigi  þann 10. febrúar nk.
Allir eru velkomnir á hátíðina sem einnig verður í beinu streymi og hefst kl.16:00. 
Þú bókar þig hér. 

Stjórnvísi óskar öllum þeim sem tilnefndir eru innilega til hamingju.  

Listi yfir þá sem eru tilnefndir til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2025 - Innilegar hamingjuóskir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?