Faghópur um vörustjórnun var með áhugaverðan fund í Innovation House þar sem þrír ráðgjafar í innkaupum fjölluðu um innkaup frá ólíkum sjónarhornum og gáfu þátttakendum hugmyndir að markmiðum fyrir árið 2018. Fundarstjóri var Anna María Guðmundsdóttir hjá Brammer Ísland ehf. Fyrirlesarar voru Þeir Ben hjá Treia ehf. en hann sagði reynslusögur um hvers vegna samningar virka ekki sem skyldi eða „ Contract Implementation Pitfalls“. Hann sagði einnig frá því sem ber að varast eftir að samningur er undirritaður og hvernig aðilar geta skapað meira virði með breyttu verklagi. Ellert Guðjónsson hjá Bergvit ehf, mun kynnti „Best Value Procurement“ aðferðafræðina sem snýr að ferlum og aðferðafræði aðfangaöflunar á haus með því markmiði að auka afköst, bæta nýtingu og lágmarkar áhættuna í verkefnum. Að lokum fjallaði Jóhann Jón Ísleifsson hjá Aðfangastýringu ehf. um hvernig fagleg innkaup geta auka hagnað fyrirtækja, hvaða tækifæri er að finna með því að skoða m.a. Tail spend (eyðslu hala) og fleira. Góð mæting var á fyrirlesturinn.
Innkaup frá ólíkum sjónarhonum
Um viðburðinn
Þrír ráðgjafar í innkaupum deila reynslusögum og tækifærum í innkaupum fyrirtækja
Þrír ráðgjafar í innkaupum munu fjalla um innkaup frá ólíkum sjónarhornum og gefa þátttakendum hugmyndir að markmiðum fyrir þetta ár.
- Ben Cleugh hjá Treia ehf. mun deila reynslusögum um hvers vegna samningar virka ekki sem skyldi eða „ Contract Implementation Pitfalls“. Hann mun einnig segja frá því sem ber að varast eftir að samningur er undirritaður og hvernig aðilar geta skapað meira virði með breyttu verklagi.
- Ellert Guðjónsson hjá Bergvit ehf, mun kynna „Best Value Procurement“ aðferðafræðina sem snýr ferlum og aðferðafræði aðfangaöflunar á haus með því markmiði að auka afköst, bæta nýtingu og lágmarkar áhættuna í verkefnum.
- Jóhann Jón Ísleifsson hjá Aðfangastýringu ehf. fjalla um hvernig fagleg innkaup geta auka hagnað fyrirtækja, hvaða tækifæri er að finna með því að skoða m.a. Tail spend (eyðslu hala) og fleira.
Fleiri fréttir og pistlar
Komin er skýrsla frá Dubai Future Foundation sem lýsir 10 meginstraumum sem munu móta heiminn okkar í náinni framtíð. Framlag skýrslunnar býr okkur undir það sem framundan er og grípa tækifærin sem hugsanlega koma í kjölfar þessara breytinga. Skýrslunni er ætlað að kynda undir nýsköpun, hvetja til ákvarðanna og knýja stjórnvöld, stofnanir og einstaklinga að vera virk í að móta sínar framtíðir. Hægt er að nálgast skýrsluna hér: https://framtidarsetur.is/2025/04/01/meginstraumar-hnattraena-breytinga/
Frá faghópi framtíðarfræða
Þann fyrsta mars mun Millennium Project, sem Framtíðarsetur Íslands er aðili að, ásamt fimm öðrum alþjóðlegum samtökum halda upp á 12. árlega Alþjóða dag framtíðar — einstakt 24 tíma netsamtal um allan heim þar sem möguleikar sameiginlegrar framtíðar okkar verða til umræðu.
Dagurinn hefst klukkan 12 á hádegi í Nýja-Sjálandi. Þetta viðburðarríka samtal mun færast vestur á við klukkutíma fyrir klukkutíma og ljúka 24 klukkustundum síðar á Hawaii. Almenningi er boðið að taka þátt hvenær sem er til að hlusta, deila hugmyndum og ræða hvernig megi skapa betri framtíð ásamt framtíðarfræðingum. Hugsuðum og virkum samfélög um allan heim.
Frekari upplýsingar og skráning er á eftirfarandi vefslóðum:
Smelltu hér til að sjá myndir frá afhendingunni, myndband, umsagnir og þá sem voru tilnefndir. Tólf einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2025 sem veitt voru í dag við hátíðlega athöfn á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands. Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum auk þess sem veitt voru sérstök hvatningarverðlaun en þetta er í sextánda sinn sem Stjórnunarverðlaunin eru afhent.
Handhafar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2025 eru eftirtaldir: Í flokki yfirstjórnenda Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innnes, í flokki millistjórnenda þær Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins og Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og vellíðunar hjá Bláa Lóninu. Í flokki frumkvöðla stofnendur Good Good þeir Jóhann Ingi Kristjánsson, Agnar Tryggvi Lemacks og Garðar Stefánsson. Stofnendur Indo, Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson og stofnendur Evolytes þau Íris Eva Gísladóttir og Mathieu G. Skulason. Þessar þrjár ólíku lausnir eiga það allar sameiginlegt að snúa að bættum lífsgæðum og árangri fyrir fjölskyldur og rekstur heimila. Auk þess voru veitt sérstök hvatningarverðlaun fyrir frumkvölastarf innan rótgróinna fyrirtækja, þau hlutu Bjargey Harðardóttir meðeigandi og stjórnandi hjá 66 Norður og Eyjólfur Pálsson stofnandi Epal.
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru árlega veitt stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Yfirlýst markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi. Einnig er þeim ætlað að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og frumkvöðla auk þess að örva umræðu um faglega stjórnun.
Í dómnefnd sátu
Borghildur Erlingsdóttir, formaður dómnefndar og forstjóri Hugverkastofunnar
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs
Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma og stjórnarkona
Salóme Guðmundsdóttir, ráðgjafi og stjórnarkona
Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Ritari dómnefndar er Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi
Hér má sjá alla þá sem tilnefndir eru til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2025.
Útnefnt verður í þremur flokkum: Yfirstjórnendur - millistjórnendur - frumkvöðlar auk þess sem veitt verða sérstök hvatningarverðlaun.
Forseti Íslands Frú Halla Tómasdóttir mun afhenda verðlaunin á Grand Hótel Háteigi þann 10. febrúar nk.
Allir eru velkomnir á hátíðina sem einnig verður í beinu streymi og hefst kl.16:00.
Þú bókar þig hér.
Stjórnvísi óskar öllum þeim sem tilnefndir eru innilega til hamingju.