Einstakt tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á því allra nýjasta sem er gerast í aðfangakeðjunni. Fyrirlesarinn, Ninian Wilson, er leiðandi sérfræðingur á heimsvísu og margverðlaunaður fyrir framsýni og framlag sitt til þróunar á innkaupa- og vörustýringu.
Skráning á viðburð hér. Ninian Wilson, Global SCM Director og forstjóri, Vodafone Procurement Company mun á næsta fundi faghóps um Innkaupa- og vörustýringu hjá Stjórnvísi, þann 23. nóvember, segja frá umbreytingarvegferð Vodafone og framtíð innkaupastýringar.
Hann hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir árangur sinn með Vodafone Procurement Company meðal annars sem ‘Leader of the year’ 2021 hjá CIPS (Chartered Institure of Procurement & Supply), sem eru æðstu verðlaun sem hægt er að fá í þessum geira, fyrir framsýni sína og framlag sitt til framþróunar innkaupa- og vörustýringar, stafrænnar vegferðar og virðissköpunar.
Hér er á ferðinni einstakt tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á því allra nýjasta sem er gerast í aðfangakeðjunni.
Vodafone Procurement hefur umsjón með innkaupum að verðmæti samtals 25 milljörðum evra árlega og um það bil 880.000 pöntunum á hverju ári fyrir Vodafone um heim allan, sem gerir fyrirtækið að stærsta IT kaupenda í heimi. Hjá fyrirtækinu starfa 850 starfsmenn sem gegna lykilhlutverki í stafrænni vegferð, úrvinnslu og greiningu gagnamagns sem verður til við slíkt umfang. Markmið Vodafone er að vera með bestu innkaupastýringu í heimi og skapa sjálfbært samkeppnisforskot fyrir Vodafone.
Ninian mun veita einstaka innsýn á bak við tjöldin hjá Vodafone Procurement, nýjungar og hvert fyrirtækið stefnir á næstu árum.
Vodafone Procurement vinnur náið með Vodafone á Íslandi og mun Guðrún Gunnarsdóttir aðfangastjóri Vodafone á Íslandi fjalla um samstarfið og hvernig það nýtist Vodafone á Íslandi.
Á viðburðinum mun Davíð Ingi Daníelsson, sviðsstjóri stefnumiðra innkaupa hjá Ríkiskaupum einnig segja frá umbreytingarvegferð og framtíðarsýn Ríkiskaupa.