ágúst 2024

Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
29
  •  
30
  •  
31
  •  
01
  •  
02
  •  
03
  •  
04
  •  
05
  •  
06
  •  
07
  •  
08
  •  
09
  •  
10
  •  
11
  •  
12
  •  
13
  •  
14
  •  
15
  •  
16
  •  
17
  •  
18
  •  
19
  •  
20
  •  
21
  •  
22
  •  
23 24
  •  
25
  •  
26
  •  
27
  •  
28
  •  
29 30
  •  
31
  •  
01
  •  

Fyrirmyndarfyrirtæki - afhending viðurkenninga

Föstudaginn 23.ágúst nk. mun 18 fyrirtækjum verða afhentar viðurkenningar fyrir stjórnarhætti sína ásamt nafnbótinni "Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum".  

Markmið verkefnisins og viðurkenningarinnar er að stuðla að umræðum og aðgerðum sem efla góða stjórnarhætti.

Viðurkenningar byggja á úttektum á stjórnarháttum þeirra félaga/fyrirtækja sem eru þátttakendur í verkefninu og taka mið af leiðbeiningum sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi gefa út.
Á annan tug viðurkenndra aðila vinna úttektirnar á fyrirtækjunum en umsjón með verkefninu og viðurkenningarferlinu er í höndum Stjórnvísi. 

Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands verður fundarstjóri.

Eyþór Ívar Jónsson stofnandi Akademías og upphafsmaður verkefnisins "Fyrirmyndarfyrirtæki" mun flytja erindi. 

Jón Gunnar Borgþórsson JGB ráðgjöf flytur inngangsorð um verkefnið.

Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins afhendir viðurkenningarnar.

Verkefnið er samstarfsverkefni Nasdaq á Íslandi, Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Stjórnvísi.

Aðalfundur faghóps Stjórnvísi um upplýsingaöryggi

Aðalfundur faghóps Stjórnvísi um upplýsingaöryggi. 
 
Dagskrá:
  • Skýrsla formanns yfir liðið ár. 
  • Kosning stjórnar faghóps.
  • Önnur mál. 

Framboð í stjórn faghópsins má senda á jonkristinn@ionradgjof.is

 

Microsoft Teams Need help?

Meeting ID: 310 272 407 105
Passcode: oPp9Tb

Allir velkomnir: Kick off fundur Stjórnvísi fimmtudaginn 29.ágúst kl.16:30 í Akademías

Kæru stjórnendur í faghópum Stjórnvísi og aðrir Stjórnvísifélagar.

Nú styttist í Kick off fund stjórna faghópa Stjórnvísi sem haldinn verður fimmtudaginn 29.ágúst nk. í Akademías Borgartúni. Vonumst til að sjá sem flesta á staðnum   -  en fyrir þá sem ekki komast er hlekkur á streymið hér að neðan. 

Tilgangur fundarins er að starta nýju starfsári af krafti. Farið verður yfir ýmis atriði sem létta stjórnendum faghópa starfið í vetur, búinn verður til vettvangur fyrir faghópana til að sameinast um viðburði, rýnt verður í helstu áskoranir faghópastarfsins en umfram allt fá innblástur til þess að gera komandi starfsár enn öflugra en þau síðustu. Einnig hlýðum við á einstaklega áhugavert erindi frá einum reyndasta MBA kennara Norðurlandanna sem jafnframt er sérfræðingur á sviði stjórnunar og viðskiptafræða Dr. Eyþór Ívar  Jónsson  forseti Akademias "Hvernig eflir maður stjórnir og stjórnarsamstarf?"  

Stjórnir faghópa eru hvattar til að hittast í ágúst, borða saman hádegisverð í boði félagsins og huga að dagskrá starfsársins.  Einnig er í ágúst oft best að bóka fyrirlesara.  Stjórn vekur athygli á að stjórnum faghópa gefst tækifæri tvisvar á starfsárinu að hittast í hádegisverði hvar sem er í boði félagsins, hægt er að setja í reikning á Nauthól, Vox og á Kringlukránni.  Mikilvægt er að kvitta undir reikninginn og skrifa nafn faghópsins. Ef aðrir staðir verða fyrir valinu er afrit af reikningi sent á Stjórnvísi og reikningurinn greiddur samdægurs.

Smelltu hér til að fylla út í skjal á vefnum drög að dagskrá en búið er að senda slóð að skjalinu á allar stjórnir faghópa. 

Stefnt er að því að senda út drög að dagskrá haustsins til félaga mánudaginn 2.september.

Akademias Island is inviting you to a scheduled Zoom meeting.
Topic: Stjórnvísi - KickOff
Time: Aug 29, 2024 04:30 PM Reykjavik
Join Zoom Meeting

https://us06web.zoom.us/j/83166921856?pwd=PV11ynhQPFujTacDDuC0nEz83vmUAM.1

 

Hér er tengill á upptökuna: https://us06web.zoom.us/rec/share/5KwiKRPQPUE5c_-bEGRUonHrJ6DQbKLi9qTeSYXEgQ398JfnwxBLfiaw1i4Ft17W.llSeba6Ryww9uZQ4?startTime=1724947995000

Passcode: Vx7Rv#rJ

  

Sjálfbærniásinn - Viðurkenningarhátíð í HR 4.september kl.09:15

Sjálfbærniásinn er nýr samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu fyrirtækja og stofnana í sjálfbærnimálum og gerir samanburð á stöðu og þróun á mörkuðum. Prósent, Langbrók og Stjórnvísi standa að Sjálfbærniásnum.
 

Markmið Sjálfbærniássins er að veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum. Mælikvarðinn mælir þá 4 þætti sem The World Economic Forum telja að muni leiða heiminn á sjálfbærari stað: plánetan (e.planet), hagsæld (e.prosperity), fólk (e.people) og stjórnarhættir (e.governance):
 
Mælingar voru framkvæmdar á tímabilinu janúar til og með apríl 2024 og ná til helstu markaða á Íslandi: Opinberra fyrirtækja, banka, raforkusala, tryggingafélaga, fjarskiptafyrirtækja, matvöruverslana, byggingavöruverslana,  fyrirtækja á erlendum mörkuðum, sjávarútvegs, framleiðslufyrirtækja, álframleiðenda, flugfélaga og flutningaþjónustu.

Viðurkenningarhátíð 
Viðurkenningarhátíðin þar sem 16 fyrirtæki fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni verður haldin miðvikudaginn 4. september klukkan 9.15 til 10.15 í Opna háskólanum ( HR) í stofu M 215 sem er staðsett til vinstri uppi á annarri hæð þegar komið er inn í Háskólann í Reykjavík.

Dagskrá í beinu streymi
9.15 - 9.20 - Ketill B. Magnússon, hjá Sjálfbærniskólanum í HR er fundarstjóri
9.20 -  9.25 - Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri Prósents kynnir rannsóknarmódelið og aðferðafræði.
9.30 - 10.00 Yfirferð á helstu niðurstöðum eftir fyrirtækjum og mörkuðum og afhending viðurkenninga. 
10.05 - 10.15 Myndataka

Allir sem áhuga hafa á sjálfbærnimálum og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja og stofnana eru hvattir til að mæta og kynna sér þetta nýja mælitæki sem getur haft mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf. Í haust mun Opni háskólinn setja upp Sjálfbærniskólann í samstarfi við Festu.

Heimasíða Sjálfbærniássins    https://www.sjalfbaerniasinn.is/
Viðburði verður í beinu streymi á visi.is og mbl.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?