Myndatexti: Jóhann Snorri Sigurbergsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar HS orku, Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova og Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi.
Í dag, 28. febrúar 2013, voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2013 kynntar og er þetta fimmtánda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 21 fyrirtæki í 6 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á 200-1300 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. Sú breyting var gerð á fyrirkomulagi í ár að einungis var afhent viðurkenning til þeirra fyrirtækja sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með
hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en þess með næst hæstu einkunnina. Í ár var því afhent viðurkenning í tveimur flokkum; raforkumarkaði þar sem HS orka fékk viðurkenningu með 62,9 stig af 100 mögulegum og farsímamarkaði þar sem Nova var með marktækt hæstu einkunnina, 72,6 stig. Ekki voru afhentar viðurkenningar á bankamarkaði, tryggingamarkaði, í flokki olíufélaga eða fyrir sigurvegara ársins, en ÁTVR mældist með hæstu einkunnina í ár, 74,1, sem reyndist ekki tölfræðilega
marktækt hærri en einkunn Nova, sem var næsthæst. Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá hér: http://stjornvisi.is/anaegjuvogin
Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem einnig voru kynntar nú í morgun:
- Merki Íslensku ánægjuvogarinnar er í eigu félagsins Íslenska ánægjuvogin. Íslenska ánægjuvogin er í eigu Capacent ehf., Samtaka iðnaðarins og Stjórnvísis.
- Þau fyrirtæki sem nafngreind eru í mælingum Íslensku ánægjuvogarinnar mega nota merkið í auglýsingum og kynningarefni að því gefnu að upplýsingar um niðurstöður og framkvæmd séu réttar.
- Aðeins getur fyrirtæki sagst vera sigurvegari eða með ánægðustu viðskiptavinina á markaði ef ánægjuvogareinkunn þess er marktækt hæsta einkunnin í viðkomandi atvinnugrein. Að jafnaði er tölfræðilega marktækur munur á einkunnum aðeins til staðar ef munurinn nær um 3 stigum á 100 punkta kvarða og er þá miðað við 95% vissu.
Nánari upplýsingar veita Davíð Lúðvíksson hjá SI í síma 5910114/8246114, netfang david@si.is og Vilborg Helga Harðardóttir hjá Capacent Gallup í síma 5401074/8601074, netfang vilborg.hardardottir@capacent.is. Upplýsingar um Íslensku ánægjuvogina má
finna á: http://stjornvisi.is/anaegjuvogin.
Hér má sjá myndir af viðburðinum:
https://www.facebook.com/media/set/?set=a.641596435908310.1073741909.110576835676942&type=3&uploaded=32