Ánægjuvogin 2019

Niðurstöður 2019 

 

Þann 24. janúar voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2019 kynntar og er þetta tuttugasta og fyrsta árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.
Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 31 fyrirtæki í 10 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á um 200-1.050 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. Líkt og undanfarin fimm ár er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina.
Í ár var afhent viðurkenning á sex mörkuðum. Á eldsneytismarkaði fékk bensínstöð Costco 85,9 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 75,1 á farsímamarkaði, Krónan var hæst allra á smásölumarkaði og einnig á matvörumarkaði með 74,7 stig, BYKO fékk 71,3 á byggingavörumarkaði, Sjóvá fékk 67 stig á tryggingamarkaði og á lyfsölumarkaði var Apótekarinn hæst með 74 stig. Costco eldsneyti var einnig með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi. Hins vegar ber að taka fram að Costco er ekki með ánægðustu viðskiptavinina á smásölumarkaði en þar var Costco með þriðju lægstu einkunnina eða 65,76 stig.

Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja færður blómvöndur í viðurkenningarskyni. Þeir markaðir þar sem ekki var marktækur munur á milli hæstu og næsthæstu einkunnar voru raforkusölur, bankamarkaður og ritfangamarkaður. Í efsta sæti hjá raforkusölum var Orka náttúrunna með 65,3 sitg, Landsbankinn var hæstur á bankamarkaði með 67,5 stig og Penninn Eymundsson á ritfangamarkaði með 71,2 stig. Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá hér undir ítarefni.

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sá Zenter rannsóknir um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni.

Bankar                           2019                                                2018                                                       2017                                                         
Landsbankinn 67,5 65,2 63,2
Íslandsbanki 66,2 68,1 66,5
Arion banki 62,8 64,1 63,1
       
Tryggingafélög 2019 2018 2017
Sjóvá 67,0* 69,8 66,8
Vörður 62,4 64,6 66,2
TM 60,9 67,4 66,8
VÍS 60,1 59,7 61,8
       
Raforkusölur 2019 2018 2017
Orka náttúrunnar 65,3 61,5 64,4
Orkusalan 64,1 61,8 63,8
HS Orka 62,7 65,6 68,0
       
Matvöruverslanir 2019 2018 2017
Krónan 74,7* 69,9 68,9
Nettó 70,0 67,9 68,8
Bónus 68,6 65,9 64,5
       
Byggingavöruverslanir                  2019 2018 2017
BYKO 71,3* 68,9* 68,9*
Húsasmiðjan 62,5 58,7 62,3
       
Farsímamarkaður 2019 2018 2017
Nova 75,1* 75,8* 76,4*
Síminn 70,6 68,0 66,9
Vodafone 63,4 64,5 69,7
       
Eldsneytisfélög 2019 2018 2017
Costco bensín 85,9* 82,3* 86,5*
Atlantsolía 71,9 69,5 68,8
Olís 71,4 63,6 66,1
ÓB 69,3 64,4 67,0
Orkan 65,7 66,7 67,2
N1 64,6 63,6 63,7
       
Smásöluverslun 2019 2018 2017
Krónan 74,7 69,9 68,9
Vínbúðir ÁTVR 74,3 73,6* 74,1
Apótekarinn 74,0* N/A N/A
BYKO 71,3 68,9 68,9
Penninn Eymundsson 71,2 N/A N/A
Lyfja 70,1 N/A N/A
A4 70,5 N/A N/A
Nettó 70,0 67,9 68,8
Bónus 68,6 65,9 64,5
Costco 65,8 65,9 59,1
Húsasmiðjan 62,5 58,7 62,3
Pósturinn 46,7 61,7 N/A
       
Lyfsölumarkaður 2019 2018 2017
Apótekarinn 74,0* N/A N/A
Lyfja 70,1 N/A N/A
       
Ritfangaverslanir 2019 2018 2017
Penninn Eymundsson 71,2 N/A N/A
A4 70,5 N/A N/A

 

*Marktækt hæsta einkunn áviðkomandi markaði.

 

Ánægjuvogin samanstendur af þremur spurningum:


⦁ Á heildina litið, hversu ánægður(ur) eða óánægð(ur) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?
⦁ Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar?
⦁ Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?


Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju. Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á http://stjornvisi.is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi og Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Zenter rannsókna í síma 511 3900 / 859 9130, netfang: trausti@zenter.is.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?