Nýsköpun

Skráðir meðlimir: 169

Faghópur um Nýsköpun

Nýsköpun hefur verið í brennidepli enda ljóst að leit að nýjum lausnum er mikilvæg hvort sem litið er til umhverfis- og orkumála, framleiðslu eða annarra atvinnugreina. Á Íslandi er mikilvægt að hlúa vel að nýsköpun til að stuðla að auknum hagvexti og aukinnar fjölbreytni í atvinnumálum á Íslandi.

Markmið

Búa til vettvang til skoðanaskipta og þekkingarmiðlunar um umhverfi nýsköpunar

Hvað er Nýsköpun

Nýsköpun er í sinni einföldustu mynd að skapa nýjar lausnir sem og bæta það sem þegar er til staðar. Á þetta jafnt við um nýja og endurbætta vöru, þjónustu, tækni, aðferðafræði, framleiðsluaðferðir, stjórnskipulag, verklag og leiðir til sölu - og markaðssetningar. Önnur þrengri skilgreining á nýsköpun sem oft er notuð í alþjóðlegu samhengi (Oslo manual) er að með nýsköpun er átt við nýja eða verulega endurbætta vöru eða þjónustu sem búið er að koma á markað eða nýjar eða verulegar bættar aðferðir sem hafa verið teknar upp innan fyrirtækis. Nýsköpunin byggist á því að nýta niðurstöður nýrrar tækniþróunar, að tengja saman þekkta tækni á nýjan hátt eða á nýtingu annarrar þekkingar sem fyrirtækið hefur aflað sér. Nýsköpun er nokkuð sem getur átt sér stað í smáum sem stórum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum. (Heimild: SI).

Hvernig starfar hópurinn

Hópurinn stendur fyrir kynnum á áhugaverðum verkefni og standa fyrir fyrirlestrum og heimsóknum tengdum nýsköpun.

Fyrir hvern

Alla sem hafa áhuga á nýsköpun.

Formenn

Nafn Titill Netfang
 
Eyþór Ívar Jónsson Forstjóri eythor [hjá] klak.is

Stjórnendur

Nafn Titill Netfang
 
Magnús Guðmundsson Forstjóri magnus [hjá] lmi.is
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir Annað nyskopun [hjá] landsbankinn.is
Sigríður Indriðadóttir Mannauðstjóri sigriduri [hjá] mos.is