Matvælasvið

Skráðir meðlimir: 49

Faghópur um Faghópur á matvælasviði

Matvælahópur Stjórnvísi var stofnaður 29. október 1997. Áður höfðu starfað landbúnaðarhópur, sjávarútvegshópur og iðnaðarhópur innan Stjórnvísi en matvælaframleiðendur innan þessara greina töldu sig eiga margt sameiginlegt varðandi gæði framleiðslunnar. Með tilkomu matvælahópsins drógu áðurnefndir hópar úr sinni starfsemi eða lögðu hana niður. Skráðir félagar í matvælahópi Stjórnvísi eru nú um 40.

Markmið

Markmið með stofnun hópsins var að skapa vettvang fyrir þverfaglegar umræður á sem víðustu sviði matvæla (úrvinnslugreinum matvælaiðnaðar, matreiðslu og matvæladreifingu, landbúnaðarframleiðslu og fiskvinnslu), um hvernig auka megi gæði íslenskra matvæla og nýta hugmynda- og aðferðafræði gæðastjórnunar í greininni. Jafnframt hefur hópurinn viljað hvetja til nánara samstarfs á sviði gæðastjórnunar milli matvælastofnana og hagmunasamtaka matvælaiðnaðarins.

Hvað er Faghópur á matvælasviði

Stjórnun á matvælasviði fjallar um hvernig má auka gæði og verðmæti íslenskra matvæla.

Hvernig starfar hópurinn

Matvælahópurinn hefur hist u.þ.b. mánaðarlega á tímabilinu september-maí og staðið fyrir fræðslufundum eða farið í fyrirtækjaheimsókn. Auk þess hefur hópurinn staðið fyrir málþingum og öðrum fræðslufundum opnum almenningi.

Fyrir hvern

Matvælahópurinn hefur hist u.þ.b. mánaðarlega á tímabilinu september-maí og staðið fyrir fræðslufundum eða farið í fyrirtækjaheimsókn. Auk þess hefur hópurinn staðið fyrir málþingum og öðrum fræðslufundum opnum almenningi.

Formenn

Nafn Titill Netfang
 

Stjórnendur

Nafn Titill Netfang
 
Gunnhildur Arnardóttir Framkvæmdastjóri stjornvisi [hjá] stjornvisi.is
Gunnhildur Arnardóttir Framkvæmdastjóri gunnharn [hjá] gmail.com