Markþjálfun

Skráðir meðlimir: 206

Faghópur um Faghópur um markþjálfun

Faghópur um markþjálfun / Stjórnendaþjálfun  (e.Coaching / Executive Coaching)

Markmið

Markmið faghópsins er að kynna markþjálfun / Stjórnendaþjálfun og hvaða ávinning stjórnendur fyrirtækja og/eða einstaklingar geta haft af henni, í faglegu eða persónulegu lífi þeirra.  Að kynna mismunandi aðferðir markþjálfunar fyrir öllum þeim sem hafa áhuga á stjórnun.

Hvað er Faghópur um markþjálfun

Markþjálfun (e.coaching) er nýleg fræðigrein sem nýtur ört vaxandi vinsælda út um allan heim. Markþjálfun eða Coaching er í dag næstmest vaxandi iðnaður í heiminum í dag, á eftir hugbúnaðargeiranum!  Stöðugur hraði og breytingar í viðskiptaumhverfinu kalla einnig á breytingar og þróun á stjórnun og stjórnunarháttum.  Stjórnendaþjálfun (executive coaching) er nálgun innan markþjálfunarfræða og er markmið þeirrar nálgunar að efla stjórnunar- og leiðtogahæfileika stjórnenda á hvaða sviði sem viðkomandi stjórnandi vill ná enn frekari árangri á.

Hvernig starfar hópurinn

Fyrirkomulag starfsins er þannig að á hverjum fundi er tekið fyrir eitt tiltekið málefni og fengnir framsögumenn, ýmist einn eða tveir.  Að því loknu eru fyrirspurnir og umræður

Fyrir hvern

Fyrirkomulag starfsins er þannig að á hverjum fundi er tekið fyrir eitt tiltekið málefni og fengnir framsögumenn, ýmist einn eða tveir.  Að því loknu eru fyrirspurnir og umræður

Formenn

Nafn Titill Netfang
 
Steinunn Hall Stjórnendamarkþjálfi steinunn [hjá] amaxa.is

Stjórnendur

Nafn Titill Netfang
 
Annetta Ragnarsdóttir Annað anra [hjá] anra.is
Íris Ösp Bergþórsdóttir Stjórnendamarkþjálfi iris [hjá] littlebigfilms.is
Unnur Valborg Hilmarsdóttir Annað unnur [hjá] vendum.is