Lean - Straumlínustjórnun

Skráðir meðlimir: 435

Faghópur um Lean - Straumlínustjórnun

Til þess að fá tilfinningu fyrir inntaki Straumlínustjórnunar er mikilvægt að sjá skipulagsheildina (fyrirtækið í heild) út frá sjónarmiði ferlahugsunar (e. process perspective) þ.e.a.s. að sjá allar aðgerðir starfsmanna sem ferli og hugsa starfsemi fyrirtækisins sem virðisframleiðslu, hvort sem um er að ræða vörur, þjónustu, upplýsingar eða alla þessa þætti í einu.

Markmið

Að kynna straumlínustjórnun fyrir áhugasömum. Að kynna það sem er nýjast á döfinni hverju sinni. Búa til vettvang til skoðanaskipta og þekkingarmiðlunar um straumlínustjórnun. Safna á einn stað upplýsingum um straumlínustjórnun. Búa til lista yfir greinar og bækur. Búa til lista yfir fyrirtæki á Íslandi og dæmi um erlend fyrirtæki sem eru að nýta sér aðferða- og hugmyndafræði straumlínustjórnunar

Hvað er Lean - Straumlínustjórnun

Straumlínuhugsun gengur út á að skilgreina aðgerðir á þrjá mismunandi vegu: Aðgerðir sem skapa virði. Aðgerðir sem ekki skapa virði en eru nauðsynlegar. Aðgerðir sem ekki skapa virði og eru óþarfar. Aðgerðir sem ekki skapa virði eru skilgreindar sem sóun, en sóun er í Straumlínustjórnun skilgreind sem sérhver aðgerð starfsmanna sem ekki skapar virði fyrir viðskiptavini. Straumlínustjórnun vinnur gegn sóun og gerir fyrirtækjum kleift að skilgreina virði, raða virðisskapandi aðgerðum í bestu mögulegu röð, framkvæma þær án truflana þegar þeirra er þörf og síðast en ekki síst að framkvæma þær sífellt hagkvæmar.

Hvernig starfar hópurinn

Hópurinn stendur fyrir fyrirtækjaheimsóknum og fær til sín sérfræðinga til að halda fyrirlestra. Í þemahópum sem skoða einstakar aðferðir innan straumlínustjórnunar.

Fyrir hvern

Alla sem hafa áhuga á hugmynda- og/eða aðferðafræði straumlínustjórnunar, sama hversu mikla eða litla þekkingu þeir hafa á málefninu.

Formenn

Nafn Titill Netfang
 
Þórunn M. Óðinsdóttir Stjórnunarráðgjafi thorunn [hjá] intra.is

Stjórnendur

Nafn Titill Netfang
 
Björgvin Víkingsson Annað bvikingsson [hjá] gmail.com
Guðmundur Árni Árnason Annað gudmundur.arnason [hjá] capacent.is
Guðmundur I. Þorsteinsson Annað gudmunduri [hjá] sjova.is
Hulda Hallgrímsdóttir Annað hhallgrimsdottir [hjá] ossur.com
Pétur Arason Millistjórnandi petur.arason [hjá] marel.is
Pétur Orri Sæmundsen Framkvæmdastjóri petur [hjá] sprettur.is
Sigurður Örn Gunnarsson Forstöðumaður sigurdur.orn.gunnarsson [hjá] rb.is